10.09.2013
Nemendur í Tröllaskagaáfanga kíktu á mannlífið í Ittoqqortoormiit í gær í gegn um glugga Byggðasafnsins Hvols á Dalvík í leiðsögn Írisar Ólafar Sigurjónsdóttur, forstöðumanns safnsins. Ittoqqortoormiit er fimm hundruð manna bær norðarlega á austurströnd Grænlands. Í kílómetrum talið er Bolungarvík næsti þéttbýlisstaður.
Lesa meira
05.09.2013
Oftast kennir kennari nemendum, þess vegna hefur hann þennan titil. En stundum er hlutverkum snúið við. Einn nýju kennaranna í MTR kemur frá Bandaríkjunum og kann lítið í tungumálinu okkar. Meðal þeirra sem vinna hörðum höndum að því að bæta íslenskukunnáttu Jeromys eru nemendur á starfsbraut.
Lesa meira
04.09.2013
Gaman er að læra að renna sér á brimbretti. Ekki síst þegar veðrið er kyrrt og sólin skín eins og í dag. Öldurnar vantaði að vísu en kom ekki að sök þar sem þetta var frumraun nemendanna í sjónum. Æfð voru tækinileg atriði við meðferð brettis og annars búnaðar.
Lesa meira
03.09.2013
Síldarminjasafnið er í auknum mæli upplifunarsafn. Í sumar hafa verið haldnar þar tuttugu og fimm sýningar á síldarsöltun en skipulagðar sýningar af því tagi á vegum safnsins eru aðeins sex eða sjö yfir sumarið. Ferðaskrifstofur hafa pantað flestar sýningarnar fyrir hópa á sínum vegum. Talsverð fyrirhöfn fylgir hverri sýningu, það þarf að útvega síld, kalla út nokkrar síldarstúlkur og fleira
Lesa meira
29.08.2013
Sigurður Ægisson prestur á Siglufirði er einn af velunnurum skólans. Hann var svo höfðinglegur að gefa okkur myndverk í sumar sem nú prýðir skólann. Þetta er vatnslitamynd sem Sigurður málaði árið 1999 og nefnist Tímans tönn. Hún sýnir part úr húsi sem búið er að rífa en var í Sléttuhlíð á Tröllaskaga. Ryðið er að naga sig í gegnum bárujárnið.
Lesa meira
27.08.2013
Alice Liu var gestur í Tröllaskagaáfanga í gær ásamt Joie Hryggur So. Alice stýrir Listhúsinu í Ólafsfirði en Joie er einn fimm listamanna sem dvelur nú í húsinu. Þetta er annað árið sem Alice rekur Listhúsið. Á þeim tíma hafa um fjörutíu listamenn dvalið í húsinu og þeir verða um fimmtíu í árslok.
Lesa meira
23.08.2013
Menntaskólinn á Tröllaskaga tekur þátt í Comeniusarverkefni með þemur skólum í jafn mörgum löndum, Ítalíu, Spáni og Þýskalandi. Verkefnið snýst um vatn og mikilvægi þess fyrir lífríki og samfélag manna. Fengist hefur styrkur að upphæð um fjórar milljónir króna úr Menntaáæltun ESB. Verkefnið stendur í tvö ár og felur í sér umfangsmiklar nemendaheimsóknir.
Menntaskólinn á Tröllaskaga leiðir verkefnið og verður Inga Eiríksdóttir, stærðfræðikennari í forsvari fyrir hönd skólans. Fyrsta heimsóknin er í næsta mánuði þegar tuttugu manna hópur nemenda og kennara frá Ítalíu, Spáni og Þýskalandi kemur og dvelur í MTR í viku. Gestirnir læra ljósmyndun, ferðast um Tröllaskaga og nágrenni auk þess að kynnast nemendum menntaskólans og öðru sem vekur áhuga þeirra á vettvangi.
Lesa meira
21.08.2013
Menntaskólinn á Tröllaskaga var settur í fjórða sinn í Tjarnarborg í morgun. Skráðir nemendur eru um eitt hundrað og áttatíu en í upphafi var miðað við að nemendur yrðu um eitt hundrað og tuttugu þegar skólinn hefði náð fullri stærð.
Lesa meira
19.08.2013
Skólasetning fer fram miðvikudaginn 21. ágúst 2013 klukkan 8:30 í Tjarnarborg Ólafsfirði. Rúta fer frá N1 á Dalvík klukkan 8:00 til Ólafsfjarðar og frá Ráðhústorgi á Siglufirði einnig klukkan 8:00.
Að lokinni skólasetningu hitta nemendur umsjónarkennara sína í skólanum en því loknu hefst hefðbundin kennsla samkvæmt stundaskrá sem nemendur geta séð í Innu. Hlökkum til að sjá gömlu nemendurna okkar aftur og kynnast nýjum.
Lesa meira
14.08.2013
Innritun í fjarnám við skólann stendur yfir. Hægt er að senda bréf á mtr@mtr.is eða hringja á dagvinnutíma til að fá upplýsingar og skrá sig. Sjá tengingar á gjaldskrá og hvaða áfangar eru í boði í fjarnámi með því að ýta á "Lesa meira".
Lesa meira