Framreiðsla

Fjórtán nemendur, níu piltar og fimm stúlkur, luku í miðannarvikunni námskeiði í framreiðslu. Námið var bæði verklegt og bóklegt. Verklega námið fór fram á Hannes Boy á Siglufirði en bóklega námið í skólanum. Þá heimsóttu nemendur þrjá veitingastaði á Siglufirði og tvo á Ólafsfirði og kynntu sér aðstæður þar.

Starf framreiðslumanns er fjölbreytt og krefst lipurðar í mannlegum samskiptum. Það er skapandi og reynir á frumkvæði við að skapa þær aðstæður sem óskað er eftir við mismunandi tilefni. Gestir veitingahúsa eru ólíkir og framreiðslumenn þurfa að uppfylla kröfur þeirra allra. Kennari var Brynjar Kristjánsson námsráðgjafi skólans sem er framreiðslumeistari. MYNDIR