Fréttir

Ný stjórn í Trölla

Ný stjórn Nemendafélagsins Trölla tekur við í dag. Kosningar sem áttu að vera 12. september eru óþarfar. Aðeins barst eitt framboð í hvert þeirra embætta sem laus voru. Þeir sem buðu sig fram eru því sjálfkjörnir. Guðni Brynjólfur Ásgeirsson tekur við formennsku af Lindu Ósk Birgisdóttur.
Lesa meira

Foreldrafundur Menntaskólans á Tröllaskaga

Fundur með foreldrum og forráðamönnum nýnema verður haldinn fimmtudaginn 6. september n.k. kl. 17:30 í húsnæði skólans. Fundurinn hefst á ávarpi skólameistara. Aðstoðarskólameistari kynnir uppbyggingu náms við skólann og sýnir notkun á nemendaumsjónarkerfinu INNU og námsvefnum MOODLE. Námsráðgjafi kynnir stoðkerfi skólans og fer yfir mikilvægi samstarfs heimila og skóla og umsjónarkennarar nýnema kynna sig. Fulltrúar úr nemendaráði koma einnig á fundinn, kynna sig og segja frá félagslífinu við skólann. Fulltrúar úr stjórn Foreldrafélags MTR kynna félagið og halda aðalfund sinn í beinu framhaldi af fundi skólans
Lesa meira

Tóbakstríð Bjargar.

Nú þegar skólinn er genginn í garð heldur frú Björg Traustadóttir áfram að berjast við tóbaksdjöfulinn innan veggja skólans. Björg er ræstirtæknir skólans, sér um bókasafnið og ýmiss skrifstofustörf. Tóbakstríð Bjargar hófst vegna þess að vaskanir voru óþrifalegir eftir að ýmsir tóbaksnotendur höfðu ekki þrifið vaskana eftir sig eftir að þeir höfðu losað úr vörinni í þá.
Lesa meira

Menntaskólinn á Tröllaskaga og Háskólinn á Akureyri þróa sjávarútvegsnám

Menntaskólinn á Tröllaskaga og Háskólinn á Akureyri ætla að vinna saman að því að bæta menntun á sviði sjávarútvegs og fiskvinnslu. Viljayfirlýsing þess efnis hefur verið undirrituð. Markmið samstarfsins er að þróa áfram nýtt nám Menntaskólans í fisktækni og uppfylla þannig þarfir atvinnugreinarinnar fyrir vel menntað starfsfólk. Námið á einnig að veita nemendum mikla möguleika á persónulegri starfsþróun og opna þeim ný tækifæri.
Lesa meira

Tækifæri til áhrifa

Laus eru tvö sæti í Ungmennaráði Fjallabyggðar. Óskað er eftir framboðum frá einstaklingum á aldrinum 16-25 ára sem stunda nám við Menntaskólann á Tröllaskaga. Skólinn á tvo fulltrúa í ráðinu. Nemendum er bent á að gerast vinir Nemendafélagsins á Facebook til að fylgjast því sem er að gerast.
Lesa meira

Nýnemadagur 2012

Á morgun verður hinn árlegi nýnemadagur haldin hátíðlegur í Menntaskólanum á Tröllaskaga. Allir nemendur mæta í tíma samkvæmt stundaskrá en klukkan 12:40 er verður haldið upp í íþróttahús og eru allir hvattir til að mæta og hafa gaman af.
Lesa meira

Skólasetning – Hópefli

Félagslíf nemenda var í forgrunni fyrsta skóladaginn. Meira en eitt hundrað nemendur köstuðu sér í hugmyndavinnu um félagslífið eftir að hafa hlýtt á setningarræðu skólameistara. Ásdís Sigurðardóttir stýrir þessu starfi og ætlar að vera nemendum til aðstoðar í vetur við að koma á og viðhalda því tómstunda- og félagsstarfi, auk skemmtana, sem nemendur vilja skipuleggja og taka þátt í.
Lesa meira

Verkefnatíma vantaði

Verkefnatíma vantar inn í stundatöflu sumra nemenda, þeir verða komnir inn á morgun.
Lesa meira

Skólinn lokaður mánudaginn 20. ágúst

Skólinn verður lokaður vegna ferðar starfsmanna.
Lesa meira

Stundatafla og lykilorð

Nýnemar: 1. Til þess að nálgast stundatöfluna þína ferð þú inn á heimasíðu skólans http://www.mtr.is og ofarlega til hægri finnur þú Inna - þar smellir þú á – Nemendur 2. Nú ert þú komin/n á innskráningarsíðu Innu. Þú slærð inn kennitölu þína, smellir á „Sækja lykilorð“ fyrir neðan. 3. Þá færð þú lykilorð og notendanafn sent á netfangið sem skráð var í Innu við innritun. Ef netfang vantar eða það hefur breyst sendir þú póst ávilla@mtr.is þar sem fram kemur nafn eða kennitala og rétt netfang. Síðan getur þú reynt að fara inn aftur að einni til tveimur klukkustundum liðnum. 4. Þegar þú hefur fengið lykilorð ferð þú aftur á heimasíðu MTR og smellir aftur á –Inna Nemendur - og skráir þig inn. Þá birtist stundataflan þín. Eldri nemar: Eldri nemendur skrá sig á Innu eins og þeir hafa gert áður.
Lesa meira