Fréttir

Frí 30. september vegna haustþings framhaldsskóla

Þann 30. september verður haustþing framhaldsskóla á Norðurlandi haldið í Menntaskólanum á Akureyri. Öll kennsla fellur niður þann dag. Þetta er eina leyfið sem nemendur fá á haustönn.
Lesa meira

Tók Bakkabræður að sér

Bræðurnir Gísli, Eiríkur og Helgi frá Bakka í Svarfaðardal eignast brátt samastað í gömlum fjárhúsum og hlöðu sunnan Dalvíkur. Aðalheiður Símonardóttir hefur í þrjú ár undirbúið sögusetur Bakkabræðra og greindi nemendum í Tröllaskagaáfanga frá þeirri reynslu.
Lesa meira

Haustlita leitað ...

Nemendur í Inngangi að listum notuðu blíðuna á þriðjudag og tóku ljósmyndir úti. Þeir æfðu sig að nota nýjan búnað og beindu auga vélanna meðal annars að runnum og rauðklæddu fólki. Þemað var RAUTT. Myndir
Lesa meira

Aðgangur foreldra að Innu og gleymd lykilorð

Forráðamenn nemenda yngri en 18 ára geta fengið aðgang að Innu. Þeir sækja sér lykilorð á www.inna.is í gegnum „gleymt lykilorð“ (sjá lýsingu hér að neðan) og fá sent nýtt lykilorð á netfang forráðamanns sem skráð var í Innu þegar sótt var um skólann. Forráðamaður notar eigin kennitölu. Gleymt lykilorð Nemandi sem hefur týnt lykilorði sínu, svo og forrráðamaður nemanda yngri en 18 ára, geta sótt sér lykilorð að Innu. Lykilorðið er sent á netfangið sem skráð er í Innu. 1. Smellt er á tengilinn "Gleymt lykilorð" til hægri á innskráningarsíðu Innu, www.inna.is. 2. Kennitalan er slegin inn og MTR valið. 3. Inna sendir sjálfkrafa notendanafn (nota má hvort heldur er notendanafnið eða kennitöluna) og lykilorð í tölvupósti á það netfang sem skráð er í Innu.
Lesa meira

Sáðmenn sandanna

Landgræðsla ríkisins færði Menntaskólanum á Tröllaskaga bókina Sáðmenn sandanna, Saga landgræðslu á Íslandi 1907-2007 að gjöf í tengslum við Dag íslenskrar náttúru sem er í dag.  Bókin hlaut verðlaun Félags bókasafns- og upplýsingafræða árið 2007 sem besta fræðibók ársins. Höfundur bókarinnar er Ólafsfirðingurinn Friðrik G. Olgeirsson sagnfræðingur. Hann segir á heimasíðu sinni um æskuárin í Ólafsfirði "Ég ólst upp í Ólafsfirði og þar byrjaði ég á unglingsárunum að vinna við fiskvinnslu og almenn verkamannastörf hjá sveitarfélaginu. Þá stundaði ég sjómennsku í tvö sumur. Þetta var góður grunnur og mikilvægur." Bókin er fengur fyrir skólann og mun nýtast nemendum sem heimild um landgræðslustarfið og auka skilning á mikilvægi verndar og uppbyggingar jarðvegs og gróðurs. Einnig er hún góður vitnisburður um hæfileika og afrek heimamanns á sviði hugvísinda. (Mynd af heimasíðu Friðriks)
Lesa meira

Útikennsla á degi íslenskrar náttúru

Í ratleik um náttúrulegt umhverfi skólans og miðbæ Ólafsfjarðar tókust nemendur frækilega á við þungar þrautir. Bæði reyndi á spretthörku til að koma sér á milli staða og kunnáttu í ensku því vísbendingar voru á því máli. Önnur ferð var tileinkuð fuglaskoðun og ljósmyndun en nemendur ætla að semja sögu og skreyta hana með myndunum. Samþætt nám í umhverfisfræði, ljósmyndun, íslensku, ensku og hreyfingu á degi íslenskrar náttúru. Myndir 
Lesa meira

Dagur íslenskrar náttúru

Hjörleifur Hjartarson, verkefnisstjóri í Náttúrusetrinu á Húsabakka í Svarfaðardal heimsótti skólann í vikunni og greindi frá starfinu í setrinu. Hann vonast til þess að það geri fólk að meiri náttúruverndarsinnum að skoða sýninguna Friðland fuglanna sem opnuð var í vor. Heimsókn í setrið ætti líka að verða til þess að menn gangi betur um náttúruna eftir en áður.
Lesa meira

Fiann Paul í heimsókn

Nemendur á listabraut nutu frásagna ljósmyndarans af aðferðum sínum og vinnu með frumbyggjum á norðurslóðum. Á bátahúsi Síldarminjasafnsins er sýning á myndum sem Fiann Paul tók á Grænlandi en hann hefur líka myndað konur á Vestfjörðum við brjóstagjöf. Fiann er afreksmaður í róðri og hefur keppt fyrir Íslands hönd.
Lesa meira

Söfn eru óformlegar menntastofnanir

Íris Sigurjónsdóttir, forstöðumaður Byggðasafnsins Hvols á Dalvík, var gestur í Tröllaskagaáfanga. Frásögn hennar af kjól sem hún forvarði vakti mesta athygli nemenda. Kjóllinn var gerður af góðum efnum fyrir um 150 árum. Hann er til sýnis í safninu og þar er saga forvörslu hans rakin.
Lesa meira

Við Tröllaskaga ?

Já, það er vel varðveitt leyndarmál að í Ólafsfirði eru ágætar aðstæður til að renna sér á brimbretti. Óliver Hilmarsson, kennari á  náttúruvísindabraut náði góðri öldu á föstudaginn.
Lesa meira