Fréttir

Að ná öldunni

Fátt jafnast á við að svífa á brimbretti eftir brattri öldunni. Í þemaviku notuðu nokkrir nemendur tækifærið og reyndu þessa skemmtun. Blautbúningar komu í veg fyrir að mönnum yrði kalt og það var sannarlega fjör í fjörunni.   Myndir
Lesa meira

Innritunartímabil fyrir vorönn 2012

Innritunartímabil fyrir vorönn 2012 hefst 1. nóvember og lýkur 22. nóvember n.k. Innritun fer fram á Menntagatt.is.
Lesa meira

Sjálfbært og lýðræðislegt félagslíf

Í Framhaldsskólanum í Austur Skaftafellssýslu, FAS, vinna nemendur að því að koma á sjálfbæru og lýðræðislegu félagslífi. Forystufólk í félagslífi nemenda er á hringferð um landið að kynna sér félagslíf í framhaldsskólum. Hópurinn kom í MTR og átti meðal annars fund með Lindu og Atla frá Trölla. Linda segir að þetta hafi verið lærdómsríkar samræður þar sem fulltrúar félaganna hafi skipst á upplýsingum. Fram hafi komið að félagslíf í FAS sé byggt upp á klúbbastarfi. Gestirnir hafi hrifist mjög af MTR og boðið fulltrúum Trölla að endurgjalda heimsókina.
Lesa meira

Val fyrir vorönn 2012

Valtímabil fyrir vorönn 2012 stendur yfir frá 25. okt.-1. nóv. Hér fylgir listi yfir þá áfanga sem boðið er upp á. Nemendur eru hvattir til að velja sem fyrst í samráði við umsjónarkennara sína. Áfangar í boði á vorönn 2012
Lesa meira

Nemendur koma fram á Vetrardagsskemmtun

Mikil ánægja hefur ríkt í hljómsveitarbúðum í Tjarnarborg í vikunni. Sex nemendur voru í búðunum og einbeittu sér að sálarþema. Þeir æfðu meðal annars lögin Little Talks með Monster of Men og Flugvélar sem Nýdönsk og Björn Jörundur fluttu. Á laugardagskvöld kemur hópurinn fram á Vetrardagsskemmtun í Tjarnarborg og tekur Þjóðveginn eftir Magnús Eiríksson og One þekkt í flutningi U2. Magnús Ólafsson tónlistarkennari stýrir hljómsveitarbúðunum.  Myndir    
Lesa meira

Í skapandi smiðju

Þórdís Arna, Greta og Þóranna voru í hópi nemenda sem fengu innsýn í tölvustudda hönnun og framleiðslu í þemavikunni. Hér eru þær með Val Valssyni, kennara og starfsmanni Nýsköpunarmiðstöðvar á Sauðárkróki. Meðal þess sem nemendur hönnuðu og framleiddu voru kökudiskar, kertastjaki, fjölskyldutré og ýmsir skrautmunir.   Myndir  
Lesa meira

Heimsókn í Norðurorku

Starfsbrautarnemendur kynntu sér orkumálin í þemaviku. Á Hjalteyri voru skoðaðar heitavatnsholur og dælustöð en á Vöglum í Hörgárdal holurnar sem sjá íbúum Akureyrar fyrir köldu vatni. Í stjórnstöðinni við Þórunnarstræti á Akureyri sáu nemendur hvernig rennsli á heitu og köldu vatni er stjórnað og þáðu veitingar. Árni Árnasson, véltæknifræðingur tók á móti hópnum og fylgdi honum um athafnasvæði Norðurorku.  Myndir
Lesa meira

Rauða nefið - hjálpartæki

Guðmundur Ólafsson, leikari hefur í þemavikunni leiðbeint hópi áhugasamra nemenda í leiklist. Nemendur hafa meðal annars spunnið atriði út frá dægurlagatextum og ferð Ingólfs Arnarsonar til Íslands. Trúðsnefið hjálpar til þegar leikarinn skreppur úr sjálfum sér og í það hlutverk sem hann vill túlka.  Myndir 
Lesa meira

Stokkið í sjóinn

Í upphafi björgunaræfingar þótt rétt að prófa gallana í stökki af bryggjunni. Á eftir fór fram æfing um borð í báti björgunarsveitarinnar Tinds í Ólafsfirði. Sveitin sér um þennan hluta þemadaga undir styrkri stjórn Gísla Rúnars Gylfasonar.  Myndir
Lesa meira

Breytt NEON-keppni

Þessir nemendur endurskipuleggja spurningakeppni Félagsmiðstöðvar Fjallabyggðar í þemavikunni. Keppnin verður haldin í desember og verður að þeirra sögn nokkuð breytt frá fyrra ári. Auk þess að skipuleggja atburðinn og stjórna honum kemur í þeirra hlut að semja nokkur hundruð spurningar af ýmsu tagi. Leiðbeinendurnir Inga og Sigmundur fengu að vera með á myndinni.
Lesa meira