Fréttir

Gagnleg ráðstefna

Markviss stefna Skota í notkun upplýsingatækni í skólastarfi vakti athygli kennara MTR sem sóttu EcoMediaEurope ráðstefnu í Glasgow í síðustu viku. Framtíðarsýn og stefna Skotanna er mótuð í samstarfi skóla og annarra menntastofnana við fulltrúa atvinnulífsins. Margt af því sem fram kom í fyrirlestrum og kynningum þótti MTR-fólki lærdómsríkt. Ekki síst framlag Kenji Lamb, stafræns ráðgjafa sem sagði frá ókeypis öppum og forritum til notkunar við nám og kennslu. Einnig má nefna upplýsingar um gagnagrunna þar sem nálgast má margvíslegt námsefni í forritun. MTR-kennararnir kynntu ýmsa tækni og aðferðir sem notuð eru hér í skólanum. Til dæmis hvernig upplýsingatækni hefur nýst á starfsbraut til að hjálpa nemendum að taka þátt í erlendu samstarfi með öðrum nemendum skólans. Kennari í ferðalandafræði sagði frá þeim áfanga og notkun upplýsingatækni þar. Áheyrendum þótti merkilegt hve frjálsræði er mikið í nýja íslenska framhaldsskólakerfinu til að skipuleggja ólíka áfanga. Til dæmis með svæðisbundnu efni sem höfðar beint til nemenda í ákveðnum skólum. Einnig greindi fjarkennari í listljósmyndun sem býr á Höfn í Hornafirði frá þeirri tækni sem hann notar í sínu starfi. Eins og sjá má af þessari upptalningu voru kynningar MTR-kennara fjölbreyttar og má að lokum geta þess að goðin í hinum forna átrúnaði þjóðarinnar fengu sinn sess. Frá þeim var sagt og síðan greindi kennari í íslensku frá því hvernig upplýsingatækni er notuð til að koma goðafræðinni til nemenda á skapandi hátt.
Lesa meira

Þjóðsögur á stafrænu formi

Heyra má dönsku á göngum skólans þessa dagana. Hér er staddur þrjátíu manna hópur frá Tækniskólanum EUC í Næstved og Köge á Sjálandi. Hópurinn vinnur með tuttugu og fimm MTR-nemendum að því að segja sögur á stafrænu formi. Hugmyndin er að þeir kynnist menningararfi eigin lands og samstarfslandsins ásamt því að æfa sig að nota mismunandi tæki og tól til að segja sögur með aðstoð stafrænnar tækni.
Lesa meira

Lára skólameistari ársins

Lára Stefánsdóttir, skólameistari MTR skaraði fram úr í könnun sem Félag framhaldsskólakennara gerði á viðhorfi félagsmanna til stjórnunarhátta og fagmennsku skólameistara. Sextán spurningar voru lagðar fyrir og dregnar saman niðurstöður úr svörunum „mjög sammála“ og „frekar sammála“. Liðlega helmingur kennara í MTR tók þátt í könnuninni. Eplið, fréttabréf, Félags framhaldsskólakennara greinir frá því að þátttaka hafi aðeins verið rúmlega 22% að meðaltali. Aðeins í 11 skólum af 30 hafi þátttaka verið meira en 20%. Félagið vonast til að könnunin verði hér eftir gerð árlega. Byrjað var að undirbúa hana árið 2014 en verkefnið fór ekki vel af stað og framkvæmdin hefur því tekið lengri tíma en ætlað var
Lesa meira

Vendikennslunámskeið

Hópur frá MTR lærði ýmislegt nýtt um vendikennslu og kenndi öðrum líka á námskeiði á Spáni í síðustu viku. Þátttakendur í námskeiðinu voru frá Sikiley, Keili í Keflavík og MTR en skólar frá fleiri löndum taka þátt í samstarfsverkefninu. Fimm nemendur úr MTR fóru á námskeiðið auk Tryggva Hrólfssonar, enskukennara skólans. Eitt af því sem nemendurnir gerðu var að setja kennarana í spor nemenda og kenna þeim á ýmis hjálpartæki á borð við duolingo og quizlet. Ólína Ýr Jóakimsdóttir einn nemendanna sem tók þátt í námskeiðinu segir að ítölsku kennurunum og nemendunum hafi þótt merkilegt að nánast engin próf væru í MTR og vendikennsla í nær öllum fögum. Ólína segir að í heild hafi námskeiðið verið áhugavert og gaman að sjá hve MTR sé framarlega í upplýsingatækni miðað við ítalska skólann. Tania Muresan sem einnig tók þátt í námskeiðinu segir ferðin og dvölin hafi verið ánægjuleg og lærdómsrík. Hún telur að krakkarnir frá MTR séu mun betri í ensku en ítölsku nemendurnir og líka flinkari í upplýsingatækni.
Lesa meira

Litháenfarar ánægðir

Mikil ánægja ríkir í hópi nemenda sem dvöldu í Litháen í viku í samstarfsverkefninu HELP. Auk Litháa og Íslendinga eru nemendur frá Noregi og Spáni í verkefninu. Viðfangsefnin í vikunni tengdust mengun með sérstakri áherslu á matvæli sem nemendur tóku með sér að heiman til rannsóknar. Einnig var fjallað um loftmengun og hljóðmengun sem var rannsökuð í kring um skólann í þátttökuborginni Siauliai. Félagslíf var fjörugt í hópnum meðan á dvölinni stóð og til dæmis haldnar kvöldvökur helgaðar hverju landi um sig. Gestgjafarnir voru leiðandi í þessu starfi sem gekk með ágætum og góð kynni tókust með þátttakendum. Aðkomufólkið naut gestrisni og gisti heima hjá litháisku þátttakendunum. Almenn ánægja var með þá tilhögun.
Lesa meira

Gjafir til leikskólabarna

Leikfangasmíði var einn áfanganna í miðannarvikunni. Hópur hressra nemenda smíðaði eldavél, dúkkuvagn, dúkkuhús, bílaborð og fleiri leikföng undir stjórn Kjartans Helgasonar smiðs. Í lok áfangans voru leiföngin gefin nemendum leikskólanna Krílakots á Dalvík, Leikhóla í Ólafsfirði og Leikskála á Siglufirði. Haukur Orri Kristjánsson einn leikfangasmiðanna segir að þetta hafi verið skemmtilegt viðfangsefni. Það hafi reynt á sköpunarkraftinn og nauðsynlegt hafi verið að beita ákveðinni lagni. Þá hafi nemendur lært að nota loftknúin verkfæri. Kennarinn hafi verið góður og hress og leyft nemendum að útfæra viðfangsefnin dálítið eftir sínu höfði.
Lesa meira

Gestkvæmt í MTR

Fjórir norskir kennarar frá Tangenåsen miðskólanum í Noregi verða gestir okkar í vikunni og fylgjast með námi og kennslu. Áhugi þeirra beinist fyrst og fremst að fjarkennslu og fjarnámi, notkun upplýsingatækni, möguleikum nemenda til að skila verkefnum á ólíku formi, leiðsagnarmati og nýsköpun í tengslum við nærsamfélagið. Í hópnum eru kennarar í tungumálum, raun- og listgreinum og sérfræðingar á fleiri sviðum.
Lesa meira

Klippimyndagerð

Markmið áfangans var að fá nemendur til að setja hlutina í nýtt samhengi með því að kynnast ólíkum sjónarhornum úr sögu málaralistarinnar. Í upphafi var fjallað um forkólfa í gerð klippimynda svo sem Pablo Picasso, Georges Braque, Kurt Schwitters og dadaistana. Næst var hugað að efniviðnum og fengu nemendur frjálsar hendur um hvernig þeir nýttu glanstímarit, bækur og fleira sem til reiðu var í sköpun sinni. Fjölbreyttar myndir urðu til hjá nemendum og bregður fyrir ólíkum karakterum, á borð við Elvis og Trump, í óvenjulegu samhengi. Nemendur gerðu síðan stórt samsett verk (255x175) úr klippimyndunum sínum sem ætti að njóta sín vel á sýningu á verkum nemenda í lok annarinnar. Leiðbeinandi í áfanganum var Martin Holm, listmálari.
Lesa meira

Leir og endurvinnsla í miðannarviku

Markmið vinnunnar í áfanganum var að opna augu nemenda fyrir endurnýtingu á ýmiskonar umbúðum, fatnaði og fleiru sem til fellur á heimilum. Saumaðir voru fjölnota innkaupapokar eða töskur úr stuttermabolum. Einnig ýmisskonar veski úr umbúðum utan af sælgæti, snakki, kaffi og fleiri neysluvörum. Þá gerðu nemendur skemmtileg ævintýrahús úr plastflöskum og leir sem ljósasería verður sett í. Nemendur voru áhugasamir og margir nytsamlegir hlutir urðu til. Kjörbúðin í Ólafsfirði ætlar að hafa innkaupatöskurnar við afgreiðslukassana þar sem fólk mun geta fengið þær endurgjaldslaust og eru viðskiptavinir hvattir til að nota þær sem mest. Leiðbeinandi í áfanganum var Kristín Anna Guðmundsdóttir.
Lesa meira

Kappakstur í MTR

Nemendur í vélmennafræði tóku góða æfingu í vikunni. Þeir skiptu hópnum í fjögur lið sem kepptu í því að forrita kúlu þannig að hún fylgdi línum á gólfinu. Eins og myndirnar sýna lágu línurnar þannig að talsverð fyrirhöfn fylgdi því að láta kúluna fylgja þeim. Vélmennafræðin er þróunaráfangi sem styrktur er af Sprotasjóði mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Nemendahópurinn er blandaður, nemendur eru úr grunnskóla, af starfsbraut og fyrsta og annars árs nemendur af öðrum brautum í MTR. Auk beinna námsmarkmiða er markmið í áfanganum er að auka kynni og samvinnu nemenda úr ólíkum áttum. Kennarar í áfanganum eru Birgitta Sigurðardóttir og Inga Eiríksdóttir.
Lesa meira