05.11.2019
Viljayfirlýsing um samstarf Pálshúss og Menntaskólans á Tröllaskaga var undirrituð í skólanum í hádeginu í dag. Samstarfið mun meðal annars felast í heimsóknum nemenda skólans og nýtingu á safnkosti og sýningarsölum safnsins til skapandi starfa og verkefna nemenda. Einnig getur falist í samstarfinu miðlun á þekkingu starfsfólks Pálshúss til nemenda MTR með erindum um safnkostinn, uppbyggingu safnsins, frumkvöðlastarf, þátttöku í ferðaþjónustu á Tröllaskaga og fleiru. Þá er mögulegt að sýna verk nemenda í húsinu.
Lesa meira
01.11.2019
Innritun í fjarnám á vorönn er hafin og geta umsækjendur skráð sig inn undir flipanum „Fjarnám“, „Innritun í fjarnám“. Áfangar þar sem pláss er fyrir fleiri nemendur eru opnir til innritunar en hverfa úr vali þegar þeir eru orðnir fullir. Gert er ráð fyrir að meðaltali 105 klukkustunda vinnu á önninni fyrir 5 eininga áfanga og eru umsækjendur beðnir að velja sér námsálag við hæfi. Innritun í staðnám fer fram á menntagatt.is
Lesa meira
30.10.2019
Heimsráðstefna skólastjóra var haldin í Shanghai í Kína 23.-25. október s.l. Lára Stefánsdóttir skólameistari MTR sótti ráðstefnuna ásamt hópi íslenskra skólameistara. Ráðstefnan var einstaklega góð, fjölmargt mátti læra og skipulag og utanumhald til fyrirmyndar. Markmiðið með ferðinni var að meta hvað væri helst á döfinni í skólastjórnun í heiminum, kynnast áherslum Kína í menntun og hver framtíðarsýn væri á skólastarf.
Lesa meira
24.10.2019
Segja má að þessi miðannaráfangi hafi byrjað með hvelli. Nemendur fengu að reyna sig í skotfimi og prófa bæði riffil og haglabyssu. Það gerðist við öruggar aðstæður á skotsvæðinu á Ólafsfirði undir stjórn Rögnvaldar Jónssonar og Gunnars Óskarssonar.
Hópurinn nýtti íþróttahúsið á Ólafsfirði, fór í boltaleiki og gerði ýmsar æfingar. Meðal annars voru prófaðar nýjar útfærslur á gömlum leikjum sem reyndu á ýmsa vöðva sem ekki eru í daglegri notkun ef marka má strengina sem nemendur fengu daginn eftir. Í íþróttahúsinu á Siglufirði var farið í bandý og hópurinn fékk kynningu á boccia hjá Helgu Hermannsdóttur. Keppt var í leiknum við iðkendur Snerpu, sem sýndu mikla leikni og unnu flesta leikina.
Klifur var iðkað á þar til gerðum veggjum bæði úti og inni og einnig reyndu menn sig í kassaklifri eins og sjá má á myndunum. Margir fleiri leikir voru á dagskránni og á miðvikudag var Anna Hulda Júlíusdóttir með fræðslu fyrir nemendur sem fólst í því að finna styrkleika sína. Nemendur gerðu veggspjöld sem sýna drauma þeirra um gott líf óháð peningum og stöðu.
Hópur nemenda fór í yoga hjá Erlu Jóhannsdóttir. Æfingarnar þóttu mjög erfiðar. Þær reyndu á styrk, jafnvægi, og liðleika en endað var á slökun. Annar hópur fór í crossfit hjá Guðrúnu Ósk Gestsdóttur, sem hafði heildarumsjón með miðannaráfanganum. Honum lauk með útileikjum og grillveislu í skógræktinni á Siglufirði.
Lesa meira
23.10.2019
Áhugasamir nemendur í áföngunum, inngangur að félagsvísindum og tilveru, nutu fræðslu um starf Anmesty Intertanional í gær. Hera Sigurðardóttir, ungliða- og aðgerðastýra frá Íslandsdeildinni kynnti starfsemi samtakanna hér heima og erlendis.
Lesa meira
21.10.2019
Hamingjan og rannsóknir á henni voru meðal viðfangsefna í einum miðannaráfanganum. Nemendur fóru meðal annars út á meðal fólks, spjölluðu við bæjarbúa og spurðu hvað veitti þeim hamingju. Nemendur lærðu að hrósa og taka hrósi, kanna eigin styrkleika, setja sér markmið og fleira. Í grunninn snérist áfanginn um að kynnast sjálfum sér betur, draga úr kvíða, auka sjálfstraust og bæta samskipti.
Í lok vikunnar lögðu nemendur mat á áfangann og lýstu almennt mikilli ánægju með hann. Mæling á sjálfstrausti gaf til kynna að meðaltalið hefði hækkað úr tæplega fjórum upp í tæplega sex í vikunni. Nemendur gáfu áfanganum einkunnina níu og liðlega helmingur sagðist þekkja sjálfa(n) sig betur eftir vikuna en áður. Leiðbeinandi í áfanganum var Sólveig Helgadóttir ACC markþjálfi.
Dæmi um umsagnir nemenda:
• Ég fékk að kynnast mér betur. Ég lærði að allt er hægt og ekkert er það hræðilegt að þú getur ekki tekist á við það.
• Ég fékk að vita meira um sjálfan mig og hvert ég er að stefna.
• Ég lærði um sjálfa mig betur. Ég lærði að treysta öðrum og að vinna betur í hóp.
• Ég fékk aðeins meira sjálfstraust. Ég skemmti mér og ég mun reyna vera jákvæðari eftir þetta.
• Mér fannst vikan mjög góð. Það var stundum erfitt að taka á móti viðfansefninu en eftir á var viðfangsefnið nauðsynlegt. Það sem stóð upp úr var gleðin í stofunni.
• Mér fannst þessi vika erfið en skemmtileg. Mér fannst skemmtilegast að gera draumakortið. Það hefði mátt stytta dagana aðeins en annars var þetta bara geggjað.
• Mér fannst hún mjög fín. Það var gott að kúpla sig út úr því venjulega og tala um hvernig hægt sé að bæta sig í lífinu. Fyrirmyndir og markmiðasetning stóð uppúr hjá mér. Ég held að þetta gæti ekki verið eitthvað öðruvísi. Takk fyrir mig.
Lesa meira
18.10.2019
Hópur nemenda hefur í miðannarvikunni æft sig í að skrifa fjölbreytta texta frá eigin brjósti og líka í að nýta texta annarra og ýmislegt í umhverfinu til að fá nýjar hugmyndir. Leiðbeinendur í áfanganum eru Anton Helgi Jónsson og Þórarinn Hannesson sem báðir hafa fjölþætta reynslu af að skrifa og vinna með texta og miðla þekkingu sinni.
Lesa meira
10.10.2019
Í næstu viku fá bæði nemendur og kennarar tilbreytingu. Staðnemar fá ný viðfangsefni og nýja kennara eða leiðbeinendur við þau. Að þessu sinni geta nemendur valið milli þriggja áfanga. Í einum áfanganum kynnast nemendur aðferðum við að skrifa fjölbreyttan texta frá eigin brjósti. Verkefnin eru ögrandi og húmor er eitt af því sem talið er æskilegt við úrlausnir, ekki síst húmor fyrir sjálfum sér. Leiðbeinendur eru Anton Helgi Jónsson, rithöfundur og Þórarinn Hannesson, ljóðskáld. Í öðrum áfanga leggja nemendur stund á þjálfun í samskiptum, sjálfsaga, slökun og fleira sem gagnast við að ná betri tökum á námi og lífinu almennt. Leiðbeinandi er Sólveig Helgadóttir, markþjálfi. Þriðji áfanginn fjallar um heilsuvernd og hreyfingu. Þar verður boðið upp á æfingar, útiveru, hugleiðslu, fræðslu um mataræði og fleira. Leiðbeinandi er gamall nemandi í MTR, Guðrún Ósk Gestsdóttir, einkaþjálfari.
Fjarnemar hafa ekki sérstök skipulögð verkefni í miðannarvikunni. Þeir sem vilja geta notað hana til að vinna sér í haginn fyrir síðari hluta annarinnar eða til að njóta tilbreytingar af einhverju tagi og efla andann fyrir vikurnar sem á eftir koma. Kennarar þurfa að fara yfir margvísleg verkefni og úrlausnir og gefa síðan öllum nemendum miðannareinkunnir. Þeir nota líka tímann til að huga að námsefni síðari hluta annarinnar og einnig vonandi til að veita sér einhverja tilbreytingu frá hinu daglega amstri.
Lesa meira
08.10.2019
Örlygur Kristfinnsson setti í sumar upp sýninguna Lundabúðin í Ytrahúsinu á Siglufirði. Sýningin var vel sótt. Nokkrar myndir á þessari sýningu mánaðarins í Hrafnavogum sýndi hann einnig þar en aðrar eru nýjar af nálinni og hafa ekki verið sýndar áður.
Örlygur fæddist 21. mars 1949 á Siglufirði. Stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1969–´73. Var myndlistarkennari í 20 ár á Siglufirði og hélt þar myndlistarsýningar af og til. Stóð að stofnun Félags áhugamanna um minjasafn árið 1989, leiddi uppbyggingu og hönnun Síldarminjasafns Íslands og starfaði sem safnstjóri þess árin 1996 – 2016. Má með sanni lýsa safninu sem einu stóru og margslungnu listaverki þar sem hvert smáatriði fær þó að njóta sín og sagan verður ljóslifandi.
Lesa meira
04.10.2019
Áhugi og eindrægni einkenndi samverustundir kennara og annars starfsfólks framhaldsskólanna sex á SAMNOR-deginum. Haldnar voru hátt í fjörutíu málstofur þar sem viðfangsefnin voru afar fjölbreytt, allt frá breytingum á heildarskipulagi námsumhverfis og hönnun á nýjum áföngum á borð við hamfarahlýnun yfir í sýndarveruleika og notkun á ýmsum forritum. Líka var fjallað um fjarkennslu í íþróttum, lokaverkefni vélstjóra, núvitundarfræðslu, erlent samstarf og margt fleira sem of langt yrði upp að telja. Nokkrir gestir nýttu boð um sjósund í Ólafsfirði og aðrir heimsóttu Skiltagerð Norðurlands og fleiri fyrirtæki í bænum. Í lok dags fóru fram fagfundir kennara einstakra námsgreina sem báru saman bækur, deildu reynslu og lærðu hver af öðrum. Þá höfðu stjórnendur skólanna einnig tækifæri til að ræða saman. Í heild einkenndi ánægja og gleði þessar samverustundir starfsmanna framhaldsskólanna á Norðurlandi.
Lesa meira