Fréttir

Rafræn skil

Menntaskólinn hefur tekið upp rafrænt skjalavörslukerfi og Þjóðskjalasafn hefur samþykkt það. Þetta þýðir að öllum gögnum úr starfi skólans sem skylt er að halda til haga með þessum hætti má skila rafrænt. Með þessu uppfyllir skólinn lagalegar skyldur sínar. Jafnframt spara rafræn skil alla prentun á pappír. Skólinn varðveitir gríðarlegt magn gagna á rafrænu formi en ef ekki er heimild til rafrænna skila þarf að prenta þetta allt út og skila til Þjóðskjalasafns á pappír. Nýja fyrirkomulagið sparar líka mikla vinnu og það kemur sér vel í fámennri stofnun.
Lesa meira

Við sjávarsíðuna

Verkin á sýningu mánaðarins í Hrafnavogum tengjast öll sjó og sjávarútvegi. Þau eru eign listaverkasafns Fjallabyggðar. Fjögur verkanna eru úr hinni veglegu listaverkagjöf Arngríms Ingimundarsonar og Bergþóru Jóelsdóttur, sem þau færðu Siglufjarðarkaupstað árið 1980. Flest verkanna eru frá sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar. Tvö eru eftir siglfirska listamenn. Þeir sem eiga verk á sýningunni eru Ágúst Petersen, Birgir Schiöth, Herbert Arnarson, Hringur Jóhannesson, Sveinn Björnsson og Veturliði Gunnarsson. Þetta er þriðja sýningin á verkum úr listaverkasafni Fjallabyggðar sem sett er upp í skólanum og færum við Fjallabyggð kærar þakkir fyrir samstarfið.
Lesa meira

Fræðst um karlmennskuna

Lesa meira

Samstarf við Pálshús

Viljayfirlýsing um samstarf Pálshúss og Menntaskólans á Tröllaskaga var undirrituð í skólanum í hádeginu í dag. Samstarfið mun meðal annars felast í heimsóknum nemenda skólans og nýtingu á safnkosti og sýningarsölum safnsins til skapandi starfa og verkefna nemenda. Einnig getur falist í samstarfinu miðlun á þekkingu starfsfólks Pálshúss til nemenda MTR með erindum um safnkostinn, uppbyggingu safnsins, frumkvöðlastarf, þátttöku í ferðaþjónustu á Tröllaskaga og fleiru. Þá er mögulegt að sýna verk nemenda í húsinu.
Lesa meira

Innritun í fjarnám á vorönn hafin

Innritun í fjarnám á vorönn er hafin og geta umsækjendur skráð sig inn undir flipanum „Fjarnám“, „Innritun í fjarnám“. Áfangar þar sem pláss er fyrir fleiri nemendur eru opnir til innritunar en hverfa úr vali þegar þeir eru orðnir fullir. Gert er ráð fyrir að meðaltali 105 klukkustunda vinnu á önninni fyrir 5 eininga áfanga og eru umsækjendur beðnir að velja sér námsálag við hæfi. Innritun í staðnám fer fram á menntagatt.is
Lesa meira

Áhersla á hamingjuna í kínverskum skólum

Heimsráðstefna skólastjóra var haldin í Shanghai í Kína 23.-25. október s.l. Lára Stefánsdóttir skólameistari MTR sótti ráðstefnuna ásamt hópi íslenskra skólameistara. Ráðstefnan var einstaklega góð, fjölmargt mátti læra og skipulag og utanumhald til fyrirmyndar. Markmiðið með ferðinni var að meta hvað væri helst á döfinni í skólastjórnun í heiminum, kynnast áherslum Kína í menntun og hver framtíðarsýn væri á skólastarf.
Lesa meira

Hreyfing og heilsuvernd

Segja má að þessi miðannaráfangi hafi byrjað með hvelli. Nemendur fengu að reyna sig í skotfimi og prófa bæði riffil og haglabyssu. Það gerðist við öruggar aðstæður á skotsvæðinu á Ólafsfirði undir stjórn Rögnvaldar Jónssonar og Gunnars Óskarssonar. Hópurinn nýtti íþróttahúsið á Ólafsfirði, fór í boltaleiki og gerði ýmsar æfingar. Meðal annars voru prófaðar nýjar útfærslur á gömlum leikjum sem reyndu á ýmsa vöðva sem ekki eru í daglegri notkun ef marka má strengina sem nemendur fengu daginn eftir. Í íþróttahúsinu á Siglufirði var farið í bandý og hópurinn fékk kynningu á boccia hjá Helgu Hermannsdóttur. Keppt var í leiknum við iðkendur Snerpu, sem sýndu mikla leikni og unnu flesta leikina. Klifur var iðkað á þar til gerðum veggjum bæði úti og inni og einnig reyndu menn sig í kassaklifri eins og sjá má á myndunum. Margir fleiri leikir voru á dagskránni og á miðvikudag var Anna Hulda Júlíusdóttir með fræðslu fyrir nemendur sem fólst í því að finna styrkleika sína. Nemendur gerðu veggspjöld sem sýna drauma þeirra um gott líf óháð peningum og stöðu. Hópur nemenda fór í yoga hjá Erlu Jóhannsdóttir. Æfingarnar þóttu mjög erfiðar. Þær reyndu á styrk, jafnvægi, og liðleika en endað var á slökun. Annar hópur fór í crossfit hjá Guðrúnu Ósk Gestsdóttur, sem hafði heildarumsjón með miðannaráfanganum. Honum lauk með útileikjum og grillveislu í skógræktinni á Siglufirði.
Lesa meira

Mannréttindafræðsla

Áhugasamir nemendur í áföngunum, inngangur að félagsvísindum og tilveru, nutu fræðslu um starf Anmesty Intertanional í gær. Hera Sigurðardóttir, ungliða- og aðgerðastýra frá Íslandsdeildinni kynnti starfsemi samtakanna hér heima og erlendis.
Lesa meira

Sjálfsefling – taktu stjórnina

Hamingjan og rannsóknir á henni voru meðal viðfangsefna í einum miðannaráfanganum. Nemendur fóru meðal annars út á meðal fólks, spjölluðu við bæjarbúa og spurðu hvað veitti þeim hamingju. Nemendur lærðu að hrósa og taka hrósi, kanna eigin styrkleika, setja sér markmið og fleira. Í grunninn snérist áfanginn um að kynnast sjálfum sér betur, draga úr kvíða, auka sjálfstraust og bæta samskipti. Í lok vikunnar lögðu nemendur mat á áfangann og lýstu almennt mikilli ánægju með hann. Mæling á sjálfstrausti gaf til kynna að meðaltalið hefði hækkað úr tæplega fjórum upp í tæplega sex í vikunni. Nemendur gáfu áfanganum einkunnina níu og liðlega helmingur sagðist þekkja sjálfa(n) sig betur eftir vikuna en áður. Leiðbeinandi í áfanganum var Sólveig Helgadóttir ACC markþjálfi. Dæmi um umsagnir nemenda: • Ég fékk að kynnast mér betur. Ég lærði að allt er hægt og ekkert er það hræðilegt að þú getur ekki tekist á við það. • Ég fékk að vita meira um sjálfan mig og hvert ég er að stefna. • Ég lærði um sjálfa mig betur. Ég lærði að treysta öðrum og að vinna betur í hóp. • Ég fékk aðeins meira sjálfstraust. Ég skemmti mér og ég mun reyna vera jákvæðari eftir þetta. • Mér fannst vikan mjög góð. Það var stundum erfitt að taka á móti viðfansefninu en eftir á var viðfangsefnið nauðsynlegt. Það sem stóð upp úr var gleðin í stofunni. • Mér fannst þessi vika erfið en skemmtileg. Mér fannst skemmtilegast að gera draumakortið. Það hefði mátt stytta dagana aðeins en annars var þetta bara geggjað. • Mér fannst hún mjög fín. Það var gott að kúpla sig út úr því venjulega og tala um hvernig hægt sé að bæta sig í lífinu. Fyrirmyndir og markmiðasetning stóð uppúr hjá mér. Ég held að þetta gæti ekki verið eitthvað öðruvísi. Takk fyrir mig.
Lesa meira

Skapandi skrif – Skapandi lestur

Hópur nemenda hefur í miðannarvikunni æft sig í að skrifa fjölbreytta texta frá eigin brjósti og líka í að nýta texta annarra og ýmislegt í umhverfinu til að fá nýjar hugmyndir. Leiðbeinendur í áfanganum eru Anton Helgi Jónsson og Þórarinn Hannesson sem báðir hafa fjölþætta reynslu af að skrifa og vinna með texta og miðla þekkingu sinni.
Lesa meira