Fréttir

Fyrsti breytti dagurinn

Fyrsti breytti dagurinn eftir að skólahúsnæðum framhaldsskóla var lokað gekk ákaflega vel. Nemendur mættu nánast allir í tíma samkvæmt stundaskrá og unnu virkilega vel. Öll starfsemi gekk hnökralaust í dag þannig að við horfum bjartsýn fram á veginn. Við hvetjum alla aðstandendur og aðra í umhverfi nemenda til að ræða við þau um námið, forvitnast um hvað þau eru að læra og sýna verkum þeirra áhuga. Það styður þau allra best.
Lesa meira

Breytt skólastarf

Nú hafa yfirvöld tekið ákvörðun um að loka húsnæði Menntaskólans á Tröllaskaga og staðbundinni viðveru nemenda vegna covid-19 veirunnar. Því flytjum við okkar vinnu alfarið á netið og höldum ótrauð áfram. Verkfærin til þess eru þau sömu og þið þekkið en glöggvið ykkur á skipulaginu. Engar breytingar verða hjá fjarnemum.
Lesa meira

Akríll: frásögn og möguleikar

Í einum miðannaráfanganum fengu nemendur fræðslu um möguleika akrílmálningar í víðum skilningi. Áfanginn hófst með umræðu um hvað væri málverk og hvað væri það ekki. Einnig var rætt hvort falleg málverk væru endilega góð listaverk og hvernig líta ætti á ljót málverk! Út frá umræðunni fóru nemendur að prófa sig áfram með efnivið og hugmyndir.
Lesa meira

Upplýsingafundur um Covid-19

Nemendur og starfsmenn MTR eru að skipuleggja viðbrögð sín við Covid-19 faraldri. Í vinnutíma í dag funduðu Lára Stefánsdóttir, skólameistari og Karólína Baldvinsdóttir, kennari sem er hjúkrunarfræðingur að mennt, með nemendum og gerðu grein fyrir viðbrögðum skólans og svöruðu spurningum nemenda. Lára lagði áherslu á að nú væri mikilvægt að nýta tímann vel, hver nemandi þyrfti að bera ábyrgð á námi sínu í enn ríkari mæli og kennarar væru boðnir og búnir til aðstoðar. Við byggjum að því að þekkja fjarvinnu vegna óveðursdaga ef til þess kæmi að ekki væri hægt að sækja skóla. Enginn afsláttur verður veittur af námi og kennslu og sérstakir frestir til verkefnaskila verða ekki veittir vegna faraldursins. Haldið verður áfram eins og verið hefur og önninni lokið á sama tíma og venjulega. Formbreyting getur hins vegar orðið á samskiptum að því leyti að starfsmenn noti tækni, svo sem Google meet, í stað þess að mæta á vettvang í skólann í Ólafsfirði. Hver starfsmaður tilkynnir nemendum sínum um þann hátt sem viðkomandi hefur á kennslu sinni í tímum á stundatöflu. Nemendur voru hvattir til að halda vel hver utan um annan á þessum óvissutímum og styðja hver annan við að halda áfram og ljúka námi sínu á önninni. Vont væri að missa einingar sem nemendur væru langt komnir með. Karólína fór yfir hegðun Covid-19 veirunnar og bent var á að ungt og hraust fólk veiktist yfirleitt ekki illa. Samfélagið væri að verja þá sem viðkvæmir væru fyrir og hvatti hún alla til að taka virkan þátt í því. Búið er að fresta heimsókn nemenda frá Danmörku til haustsins og verið að skoða með áformaða ferð MTR- nema til Portúgals - hvort hugsanlegt sé að fresta henni líka.
Lesa meira

Neyðarstig vegna Covid-19

Nú hefur embætti landlæknis lýst yfir neyðarstigi almannavarna vegna Covid-19 veirusmits. Mikilvægt er að fylgja í hvívetna leiðbeiningum landlæknis sem má finna hér. Viðbragðsáætlun og viðbragðsleiðbeiningar MTR má sjá á vef skólans á forsíðu.
Lesa meira

Dægurlög á táknmáli

Nemendur sem völdu táknmálsáfanga í miðannarvikunni hafa kynnst samfélagi og menningu heyrnarlausra í gegnum íslenska táknmálið. Þau lærðu grunninn í samskiptum á táknmáli eins og að kynna sig, skiptast á grunnupplýsingum og halda uppi einföldu samtali. Þá fengu þau líka að spreyta sig á að læra og syngja dægurlög á táknmáli. Áfanganum lauk með nokkurskonar "partý tíma" með leikjum þar sem aðeins var talað táknmál. Nemendur fengu líka tækifæri til að spyrja um táknin sem þau voru forvitin um en voru kannski ekki í námsefninu. Leiðbeinandi í áfanganum var Unnur Ósk Unnsteinsdóttir, táknmálstúlkur hjá Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra.
Lesa meira

Drasl eða djásn

Í miðannarvikunni hefur hópur nemenda endurnýtt gamla hluti og búið til nýjar vörur. Nemendur öfluðu sér hráefnis, rannsökuðu það, greindu og mátu möguleikana á nýtingu. Í vettvangsferð um bæinn og heimsókn í nokkur fyrirtæki var aflað fanga og fróðleiks um smíði og framleiðsluaðferðir. Meðal hluta sem til urðu er borð sem hefur brúsa fyrir fætur en brotnar flísar skreyta plötuna, stólar úr rörum og líka stólar úr frauðplasti. Gamall þrýstikútur varð að fótstykki fyrir lítið borð og lampa en rör úr fótboltamarki heldur ljósinu uppi. Þá eru markmannshanskar að öðlast framhaldslíf sem blómapottar. Lokaskrefið er síðan að stilla vörunni upp til kynningar eða auglýsingar. Almenn ánægja er með námskeiðið og orðaði einn nemandinn það svo að sjónsviðið hefði stækkað varðandi hvað hægt væri að gera úr gömlum hlutum. Leiðbeinandi var Dagur Óskarsson, vöruhönnuður.
Lesa meira

Viðbragðsáætlun MTR og Covid-19

Vakin er athygli á viðbragðsáætlun sem birt er á heimasíðu skólans. Þar er lýst réttum viðbrögðum við ógnunum svo sem náttúruvá, efnaslysum og smitsjúkdómum. Með áætlunni er verið að gera viðbragðsleiðbeiningar fyrir mismunandi vá. Eins og kunnugt er hefur Ríkislögreglustjóri lýst yfir hættustigi á landinu vegna veirunnar COVID-19. Það er gert í samráði við sóttvarnarlækni og embætti landlæknis. Vegna þessa var kafla um leiðbeiningar fyrir skóla um varnir gegn sýklum hraðað og má finna hér (https://www.mtr.is/static/files/Aaetlanir/lok-vidbragdsleidbeiningar-sy-klar.pdf). Frekari upplýsingar og leiðbeiningar útbreiðslu COVID-19 sýkilsins er að finna á vefsíðu embættis landlæknis á https://www.landlaeknir.is/ Nemendur og starfsmenn MTR eru hvattir til að kynna sér rækilega upplýsingarnar og fylgja ábendingum um varnir gegn smiti og grípa til aðgerða ef grunur um smit vaknar
Lesa meira

Heilsunammi á öskudaginn

Að venju var Menntaskólinn á Tröllaskaga opinn börnum á öskudaginn og hljóðkerfi upp sett til að söngur þeirra hljómaði fagurlega um sali. Svo brá við að færri nýttu þetta góða tækifæri en oft hefur verið á þessum degi. Ekki er fullljóst hvernig á því stendur. Ástæðan gæti hugsanlega tengst verðlaununum fyrir sönginn. Sú nýbreytni var upp tekin í fyrra að launa öskudagssönginn með harðfiski í stað sætinda. Það mæltist vel fyrir þá en nú bregður svo við að syngjandi gestir hafa verið með færra móti. Við þökkum þeim sem komu fyrir sönginn og frumlega búninga sem margir skörtuðu. Þess má geta að í hópi starfsmanna vakti búningur Margrétar íslenskukennara mesta athygli, en hún var búin sem skratti með fork, eins og nemendur lýstu búningnum.
Lesa meira

Fræðsla um geðheilbrigði

Nemendur MTR og tíunda bekkjar GF fengu í morgun góða heimsókn frá Geðfræðslufélaginu Hugrúnu sem hvetur til opinnar umræðu um geðheilbrigðismál og andlega líðan. Góð geðheilsa skiptir alla máli og er undirstaða þess að njóta sín í daglegu lífi. Hún veitir ákveðið jafnvægi en tryggir ekki stöðuga gleði og hamingju. Í fyrirlestrinum var lögð áhersla á hina heilögu þrenningu, svefn, næringu og hreyfingu ásamt meðvitund um líðan og tilfinningar. Nemendur fengu góð ráð um hvert þeir geti leitað í vanda auk upplýsinga um hvernig hægt er að stuðla að góðri geðheilsu vina og vandamanna. Að meðaltali lendir fólk í um þrjátíu atburðum um ævina sem geta haft afgerandi áhrif, svo sem ástvinamissi, sambandsslitum, slysi, greinist með sjúkdóm o.s.frv. Geðheilsa er samofin annarri heilsu. Fólk fer á heilsugæslu eða sjúkrahús ef það meiðir sig, verður lasið eða lendir í slysi. Á sama hátt er rétt að leita strax til fagfólks ef geðheilsan versnar.
Lesa meira