- 11 stk.
- 05.12.2014
Þau nýmæli voru upp tekin í stærðfræði á starfsbraut að nemendur notuðu perlur til að mynda ýmis form og átta sig
á samhverfum flötum. Út úr þessu kom hið fegursta skraut sem hengt var upp í lok vikunnar og mun lífga upp á húsakynni fyrir
jólin. Almenn ánægja ríkti með þetta verkefni og gæti verið að það yrði endurtekið. Í rauninni er verkefnið
þríþætt. Það veitir þjálfun í stærðfræði, æfir fínhreyfingar og svo eru gripirnir aukaafrakstur, segir Birgitta
Sigurðardóttir, sérkennari.