Ung ljóðskáld mynd ÞH
Í dag komu nemendur úr 8. - 10. bekk Grunnskóla Fjallabyggðar í skólann til að setja saman ljóð. Tilefnið var hin árlega ljóðasamkeppni þessara bekkja sem er liður í ljóðahátíðinni Haustglæður sem haldin hefur verið í Fjallabyggð allt frá árinu 2007. Hátíðin er samstarfsverkefni Ljóðaseturs Íslands og Ungmennafélagsins Glóa en Grunnskóli Fjallabyggðar og Menntaskólinn á Tröllaskaga eru meðal þeirra aðila sem taka þátt í framkvæmdinni. Nemendur nota listaverk sem kveikjur að ljóðum og að þessu sinni voru það verk eftir starfsfólk skólans, núverandi og fyrrverandi nemendur hans og verk úr safni skólans.
Nemendur fengu góð ráð í ljóðasmíðinni frá Þórarni Hannessyni, kennara í MTR og forstöðumanni Ljóðaseturs Íslands, áður en leitað var innblásturs frá listaverkunum. Misjafnlega gekk að koma orðum á blað, eins og gengur og gerist, en uppskeran var engu að síður góð; um áttatíu ný ljóð. Nú bíður það fimm manna dómnefndar að vega og meta afurðirnar og höfundar bestu ljóðanna verða svo verðlaunaðir. Úrslit verða kunngjörð á Ljóðasetri Íslands á Siglufirði síðar í desember.
Það er mikils virði fyrir skólann að fá ungmenni úr grunnskóla byggðarlagsins í heimsókn. Með því fá þau að kynnast andrúmsloftinu í skólanum sem eykur líkurnar á að þau sækist eftir skólavist þegar þar að kemur. Myndir