Syngjandi furðuverur

Furðuverur mynd GK
Furðuverur mynd GK

Venju fremur gestkvæmt hefur verið í skólanum í tilefni dagsins. Nemendur og starfsmenn hafa notið söngs fjölda barna og þau hafa þegið sælgæti að launum. Flestum gestanna finnst dálítið fútt í því að komast í hljóðkerfi skólans og heyra sönginn hljóma í anddyrinu. Söngvar um sólina og skæru litina voru áberandi í dag enda snjór yfir öllu í Ólafsfirði. Lítið fréttist hins vegar af Bjarnastaðabeljunum og Gamla-Nóa sem oft hefur verið að góðu getið á öskudaginn.

Venju fremur gestkvæmt hefur verið í skólanum í tilefni dagsins. Nemendur og starfsmenn hafa notið söngs fjölda barna og þau hafa þegið sælgæti að launum. Flestum gestanna finnst dálítið fútt í því að komast í hljóðkerfi skólans og heyra sönginn hljóma í anddyrinu. Söngvar um sólina og skæru litina voru áberandi í dag enda snjór yfir öllu í Ólafsfirði. Lítið fréttist hins vegar af Bjarnastaðabeljunum og Gamla-Nóa sem oft hefur verið að góðu getið á öskudaginn. Myndir