Stærðfræðikeppnin 2015

Stærðfræðikeppnin
Stærðfræðikeppnin
Elín Ósk Björnsdóttir, Höfðaskóla varð í fyrsta sæti í stærðfræðikeppni Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og Menntaskólans á Tröllaskaga fyrir 9. bekki grunnskóla á Norðurlandi vestra, í Fjallabyggð og Dalvíkurbyggð. Úlfar Hörður Sveinsson, Árskóla varð í öðru sæti og þriðja sætinu deildu þau Ágústa Eyjólfsdóttir, Árskóla og Aron Ingi Ingþórsson, Húnavallaskóla.

Elín Ósk Björnsdóttir,  Höfðaskóla varð í fyrsta sæti í stærðfræðikeppni Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og Menntaskólans á Tröllaskaga fyrir 9. bekki grunnskóla á Norðurlandi vestra, í Fjallabyggð og Dalvíkurbyggð. Úlfar Hörður Sveinsson, Árskóla varð í öðru sæti og þriðja sætinu deildu þau Ágústa Eyjólfsdóttir, Árskóla og Aron Ingi Ingþórsson, Húnavallaskóla. Stærðfræðikeppnin er samstarfsverkefni Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og Menntaskólans á Tröllaskaga. Undankeppnin fór fram  í mars s.l. og tóku nemendur í 9. bekk af Norðurlandi vestra, úr Fjallabyggð og Dalvíkurskóla þátt í henni. Að þessu sinni komust 15 nemendur í úrslit. Það var glæsilegur hópur sem mætti einbeittur til leiks í morgun. Keppendur stóðu sig allir með afbrigðum vel og voru snöggir að svara prófinu.

Við óskum sigurvegurunum og  keppendum öllum til hamingju með árangurinn. Myndir