Spenna í skráningu

Nærri lá að örtröð skapaðist framan við afgreiðsluborðið hjá Björgu í morgun. Allir vildu komast sem fyrst að til að skrá sig í þann áfanga í miðannarvikunni sem hugurinn stóð til. Á hálfri klukkustund fylltust þrír áfangar af sex. Vinsælasti áfanginn er í heilsufræði og blönduðum íþróttum sem Lísebet Hauksdóttir kennir.

Áfangar í Minecraft sem Skema sér um og í skyndihjálp eru einnig fullir. En þeir sem ekki eru búnir að skrá sig þurfa samt ekki að kvíða, enn er hægt að komast í listræna verkefnið Solar Parcel, í útiveru og björgun og námskeið í fjölgreindakenningu Gardners sem Karitas Skarphéðinsdóttir Neff kennir.