Skólabyrjun, skólinn fullur

 

Nám hefst mánudaginn 19. ágúst. Staðnemar mæta samkvæmt stundaskrá og fjarnemar mæta á netinu sama dag. Stundatöflur opna 15. ágúst í Innu. Nemendur finna áfanga sína á inna.is undir Námið > Námsferill- annir og þar má finna námsgögn, ef við á, undir hverjum áfanga.

Skólinn er mjög ásetinn og ekki er hægt að taka fleiri nemendur inn á haustönn. Innritun fyrir vorönn hefst 1. nóvember.