Skólaakstur í vetur

Áætlunin fyrir skólaakstur milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar er frágengin og nemendur þurfa að sækja um rútukort í skólanum. Áætlun fyrir akstur milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar er tímabundin þangað til Grunnskóli Fjallabyggðar hefst.

Dalvík – Ólafsfjörður – Dalvík
Farið frá N1 Dalvík kl: 8:00 og heim í lok skóladags kl: 15:40
Nemendur þurfa að sækja um sérstakt rútukort fyrir önnina, nemendur fá betri upplýsingar um það á miðvikudaginn.

Siglufjörður – Ólafsfjörður – Siglufjörður*
Farið frá Torginu Siglufirði kl: 8:00 og heim í lok skóladags kl: 15:40
*Þessi áætlun gildir þar til grunnskólinn hefst