Sindri kynnir bók sína

Mynd Þórarinn Hannesson
Mynd Þórarinn Hannesson
Peacemaker: The Absorbing Rock er titill bókar eftir Sindra Valþórsson nemanda MTR. Þetta er ofurhetjusaga og bókin er gagnvirk, lesandinn getur ráðið nokkru um framvinduna og það eru fjórir mismunandi möguleikar á sögulokum. Nemendur á starfsbraut voru áhugasamir og spurðu margs þegar Sindri kynnti söguna fyrir þeim. Hægt er að panta bókina á amazon.com.

Í kynningu á bókinni á amazon segir að aðalpersónan sé venjulegur unglingur sem öðlist ofurkrafta eftir að hann fann dularfullan stein. Hann noti kraftinn til að verja heimkynni sín og koma á friði í heiminum. Hins vegar hafi steinninn einnig skapað hættulegasta keppinaut unglingsins.

Árangur Sindra er einkar athyglisverður. Hann varð tvítugur í síðasta mánuði og verður að teljast afrek hjá svo ungum manniað skrifa og fá útgefna bókeftir sig í hinum enskumælandi heimi.

Hér er hægt að skoða forsíðu bókarinnar, lesa meira um hana og panta sér eintak.

http://www.amazon.com/Peacemaker-Absorbing-Rock-Explore-A-Quest-Volume/dp/1493567136/ref=sr_1_1?ie=UTF8&qid=1392649490&sr=8-1&keywords=Peacemaker+the+absorbing+rock

Texti: Sigþór Andri Gunnlaugsson