Stærsti hópur til þessa brautskráðist frá skólanum í dag. Í lok haustannar útskrifuðust átta stúdentar þannig að brautskráðir nemendur eftir veturinn eru tuttugu og fimm. Skólinn tók til starfa haustið 2010 og er þetta 8. útskriftin. Samtals hafa 58 nemendur útskrifast frá skólanum. Hann hefur verið fullsetinn í tvö ár miðað við þær áætlanir sem gerðar voru áður en hann tók til starfa.
Stærsti hópur til þessa brautskráðist frá skólanum í dag. Í lok haustannar útskrifuðust átta stúdentar
þannig að brautskráðir nemendur eftir veturinn eru tuttugu og fimm. Skólinn tók til starfa haustið 2010 og er þetta 8. útskriftin. Samtals hafa 58
nemendur útskrifast frá skólanum. Hann hefur verið fullsetinn í tvö ár miðað við þær áætlanir sem gerðar voru
áður en hann tók til starfa.
Jóna Vilhelmína Héðinsdóttir, aðstoðarskólameistari sagði í ræðu sinni við brautskráningu í morgun að
húsnæðið væri farið að þrengja verulega að starfseminni. Á vorönn voru 170 nemendur skráðir í nám við
skólann, 113 staðnemar en 57 fjarnemar. Hlutföll kynja voru jöfn, 86 stúlkur og konur en 84 piltar og karlmenn. Starfsmenn voru 24.
Lára Stefánsdóttir, skólameistari sagði að þeir sem nú væru að útskrifast hefðu flestir komið í skólann
beint eftir grunnskóla og hefðu því verið í MTR allan framhaldsskólatímann. „Þið þorðuð að koma, þið
treystuð okkur og við treystum á ykkur“ sagði Lára. Hún sagði líka að þótt hún hefði víða farið hefði
hún hvergi séð jafn mikinn samstarfsvilja við skóla í nærsamfélagi hans. Sama væri hvort málið snerist um samstarf við
íþróttafélög, björgunarsveit eða fólk í atvinnulífinu, allir væru boðnir og búnir til að gera sitt til að efla
nám nemenda og aðstoða starfsmenn skólans.
Þórhildur Sölvadóttir flutti ávarp nýstúdents og sagðist varla trúa því að þrír vetur væru liðnir
síðan hún hóf nám hér. Hún sagði að sér hefði liðið vel allan tímann ekki síst vegna þess hve
skólinn sé persónulegur og heimilislegur. Þórhildur sagði að það hefði verið gaman að vera nemandi í nýjum skóla
og hjálpa til við að móta hann. Skólinn hefði gefið hópnum tækifæri til að opna hugann, komast nær markmiðum sínum
í lífinu og sýna að það séu fleiri en ein leið í boði. Myndir