Sáðmenn sandanna

Landgræðsla ríkisins færði Menntaskólanum á Tröllaskaga bókina Sáðmenn sandanna, Saga landgræðslu á Íslandi 1907-2007 að gjöf í tengslum við Dag íslenskrar náttúru sem er í dag.  Bókin hlaut verðlaun Félags bókasafns- og upplýsingafræða árið 2007 sem besta fræðibók ársins. Höfundur bókarinnar er Ólafsfirðingurinn Friðrik G. Olgeirsson sagnfræðingur. Hann segir á heimasíðu sinni um æskuárin í Ólafsfirði "Ég ólst upp í Ólafsfirði og þar byrjaði ég á unglingsárunum að vinna við fiskvinnslu og almenn verkamannastörf hjá sveitarfélaginu. Þá stundaði ég sjómennsku í tvö sumur. Þetta var góður grunnur og mikilvægur." Bókin er fengur fyrir skólann og mun nýtast nemendum sem heimild um landgræðslustarfið og auka skilning á mikilvægi verndar og uppbyggingar jarðvegs og gróðurs. Einnig er hún góður vitnisburður um hæfileika og afrek heimamanns á sviði hugvísinda. (Mynd af heimasíðu Friðriks) Landgræðsla ríkisins færði Menntaskólanum á Tröllaskaga bókina Sáðmenn sandanna, Saga landgræðslu á Íslandi 1907-2007 að gjöf í tengslum við Dag íslenskrar náttúru sem er í dag.  Bókin hlaut verðlaun Félags bókasafns- og upplýsingafræða árið 2007 sem besta fræðibók ársins. Höfundur bókarinnar er Ólafsfirðingurinn Friðrik G. Olgeirsson sagnfræðingur. Hann segir á heimasíðu sinni um æskuárin í Ólafsfirði "Ég ólst upp í Ólafsfirði og þar byrjaði ég á unglingsárunum að vinna við fiskvinnslu og almenn verkamannastörf hjá sveitarfélaginu. Þá stundaði ég sjómennsku í tvö sumur. Þetta var góður grunnur og mikilvægur." Bókin er fengur fyrir skólann og mun nýtast nemendum sem heimild um landgræðslustarfið og auka skilning á mikilvægi verndar og uppbyggingar jarðvegs og gróðurs. Einnig er hún góður vitnisburður um hæfileika og afrek heimamanns á sviði hugvísinda. (Mynd af heimasíðu Friðriks)