Réttardagur

Frumkvæði – sköpun og áræði eru einkunnarorð skólans. Í þessu getur meðal annars falist að þora að vera öðruvísi og hafa aðrar hefðir en ríkja í framhaldsskólum annars staðar á landinu. Busun nýnema tíðkast ekki Menntaskólanum á Tröllaskaga en í staðinn hjálpa nemendur eigendum sauðfjár í Ólafsfirði við smölun og rekstur til réttar.

Jón Konráðsson er gangnaforingi  Ólafsfirðinga  og það var hann sem sá um samhæfingu aðgerða  við smölun og rekstur. Féð var rekið eftir Ægisgötu og Aðalgötu gegn um bæinn til réttarinnar í fyrsta sinn í mörg ár. Réttin er við munna ganganna til Héðinsfjarðar. Reksturinn gekk vel og margir íbúar komu út úr húsum sínum og stilltu sér upp á götuhornum til að fylgjast með rekstrinum. Það gekk á ýmsu og nokkrar kindur reyndu að sleppa en öflugir fyrirstöðumenn og “hobby” bændur komu í veg fyrir að það tækist.
Eftir fjárrekstur og fyrirstöðu var grillað á skólalóðinni. Haft var við orð að rétt væri að reka féð beint á grillið en það þótti fullgróft. Svangir nemendur létu sér nægja að sporðrenna pylsum úr fyrra árs framleiðslu. Veðrið lék við fé og fólk í Ólafsfirði í dag, mild sunnangola strauk vangann og sólin yljaði. MYNDIR