Pólitískir gestir

Frambjóðendur
Frambjóðendur
Frambjóðendur hafa verið duglegir að heimsækja skólann síðustu daga eins og gott er í aðdraganda kosninga. Þeir hafa verið áhugasamir um skólastarfið og jákvæðir í garð skólans. Hlustuðu og skoðuðu, settu sig inn í mál og spjölluðu við nemendur og starfsmenn.

Benedikt Jóhannesson og Hildur Betty Kristjánsdóttir frá Viðreisn komu í síðustu viku. Framsóknarmennirnir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Sigfús Arnar Karlsson komu í gær og í dag voru það Steingrímur J. Sigfússon, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir og Björn Valur Gíslason frá Vinstri grænum.