Nýsköpun Vélfags

Vélfag framleiðir fiskvinnsluvélar, - hausara, flökunarvélar, roðvélar og nú er verið að búa til vél sem gerir mögulegt að nýta dálkinn betur. Ólöf Ýr Lárusdóttir, framkvæmdastjóri sagði nemendum í Tröllaskagaáfanga að þetta væri heitast í dag – að nýta hluta fisksins sem eitt sinn var hent. Velgengni Vélfags byggist á góðu samstarfi við sjómenn og aðra sem þekkingu hafa á vinnslu og veiðum.

Þegar fiskvinnsla Íslendinga fluttist út á sjó urðu úrfellingar og ryð alvarlegt vandamál. Þetta olli bæði lélegri nýtingu og auknum viðhaldskostnaði. Lausn Vélfags var að nota ryðfrí efni í vélarnar og hanna þær þannig að þær þoli erfiðar aðstæður á miðunum. Fyrstu flökunarvélarnar frá Véltaki fóru um borð í Mánaberg ÓF og Sigurbjörgu ÓF árið 2009.
Tæp tuttugu ár eru síðan Vélfag var stofnað og lengi var ársveltan 20-25 milljónir króna. Nú er hún 2-300 milljónir og fyrirtækið hefur ráðandi stöðu á markaði fyrir fiskvinnsluvélar hér á landi. Áður „átti“ þýska fyrirtækið Baader markaðinn en þar blunduðu menn á verðinum og hugvitsmönnunum í Véltaki tókst að leysa ýmis vandamál vinnslunnar um borð í skipunum sem Baader hafði ekki gefið gaum.

Ólöf sagði nemendum að fyrirtækið hefði náð öllum helstu markmiðum sínum varðandi gæði, nýtingu, endingu, afkastagetu og fleira. Því væri hægt að fara að horfa út fyrir landsteinana og fyrsta vélin hefði þegar verið seld úr landi. Hún fór til Frakklands.
Ólöf Ýr benti nemendum á að þeir byggju í deiglu. Hér á Tröllaskaga væri margt að gerast í tengslum við sjávarútveg og möguleikar á margskonar áhugaverðum störfum. Gott væri að byrja í fiskvinnslu, þótt menn ætluðu ekki að gera hana að ævistarfi, þar væri hægt að læra margt sem gæti nýst síðar. Fyrirtækið sitt byggði á þekkingu sem væri hér á svæðinu en fengist ekki í neinum háskólum.