Nemendur skólans í viðtali á N4

Þriðjudaginn 7. desember verð Jólatónleikar á vegum nemenda Menntaskólans á Tröllaskaga til styrktar Barnaspítalasjóði Hringsins Tónleikarnir eru verkefni hóps nemenda í  svokölluðum Miðannaráfanga við Menntaskólann á Tröllaskaga. Í áfanganum vinna nemendur eigin verkefni, alveg frá hugmynd til lokaframkvæmdar. Verkefnin hafa verið af ýmsum toga og hefur hugmyndaflug nemenda ráðið för.  Auk skipulagningar jólatónleikanna, hefur verið haldinn flóamarkaður og LAN-mót. Haldið verður innanhússmót í fótbolta fyrir unglinga n.k. þriðjudag,  gefa á út uppskriftabæklinga á netinu og gera á viðhorfskönnun  hjá eldri grunnskólanemendum um sameiningu skólanna. Einnig er hópur að skoða  markaðsmöguleika fyrir hestaleigu á svæðinu svo eitthvað sé nefnt.  Áfanginn hefur einmitt miðað að því að opna fyrir sköpunarkraft nemenda og gera þá óhrædda við að prófa, framkvæma og þróa eigin hugmyndir. Þriðjudaginn 7. desember verð Jólatónleikar á vegum nemenda Menntaskólans á Tröllaskaga til styrktar Barnaspítalasjóði Hringsins Tónleikarnir eru verkefni hóps nemenda í  svokölluðum Miðannaráfanga við Menntaskólann á Tröllaskaga. Í áfanganum vinna nemendur eigin verkefni, alveg frá hugmynd til lokaframkvæmdar. Verkefnin hafa verið af ýmsum toga og hefur hugmyndaflug nemenda ráðið för.  Auk skipulagningar jólatónleikanna, hefur verið haldinn flóamarkaður og LAN-mót. Haldið verður innanhússmót í fótbolta fyrir unglinga n.k. þriðjudag,  gefa á út uppskriftabæklinga á netinu og gera á viðhorfskönnun  hjá eldri grunnskólanemendum um sameiningu skólanna. Einnig er hópur að skoða  markaðsmöguleika fyrir hestaleigu á svæðinu svo eitthvað sé nefnt.  Áfanginn hefur einmitt miðað að því að opna fyrir sköpunarkraft nemenda og gera þá óhrædda við að prófa, framkvæma og þróa eigin hugmyndir.

Flytjendur á tónleikunum eru:
Daníel Pétur Daníelsson, Eyrún Brynja Valdimarsdóttir, Gómar, Lísa Margrét Gunnarsdóttir, Lísebet Hauksdóttir, Ólöf Kristín Ásgeirsdóttir ásamt barnakór, Rakel Anna Knappett, Svava Jónsdóttir, Þórarinn Hannesson, Þorsteinn Bjarnason og Þorsteinn Sveinsson.

Tónleikarnir verða í  Tjarnarborg, Ólafsfirði. Húsið opnar 19:30.
Aðgangseyrir 2000 kr. fyrir 12 ára og eldri, 1000 kr. fyrir 6-11 ára og frítt fyrir yngri.

Í síðustu viku kom sjónvarpsstöðinn N4 í heimsókn og tók viðtal við nemendahópinn. Hægt er að horfa á viðtalið hér:http://www.n4.is/tube/file/view/1360/