Nemendum fjölgar

MTR mynd GK
MTR mynd GK

Liðlega þrjú hundruð og fimmtíu nemendur eru skráðir í nám við skólann á vorönninni. Þar af eru um eitt hundrað staðnemar en um tvö hundruð og fimmtíu fjarnemar. Þetta eru um tólf prósent fleiri nemendur en á haustönn. Reiknaðir ársnemar í fjárlögum ríkisins eru 125 fyrir þetta ár en á síðasta ári voru þeir 108.

Fjölmennasta brautin er félags- og hugvísindabraut með um hundrað og fimmtíu nemendur, um sjötíu eru á náttúruvísindabraut en liðlega þrjátíu á íþrótta- og útivistarbraut og álíka margir á listabraut.