Kennarar spreyta sig í sýndarveruleika.
Ljósm. SMH
Á föstudaginn var mættu allir kennarar skólans á námskeið í notkun sýndarveruleika og tölvuleikja í skólastarfi. Að auki var kennurum frá VMA, FSH og Grunnskóla Fjallabyggðar boðið að vera með svo það var mikil líf í húsinu þennan föstudag.
Leiðbeinendur voru Natalie Denk og samstarfsmaður hennar, Simon Wimmer en hún stýrir deild innan háskólans í Krems í Austurríki sem einbeitir sér að endurmenntun og upplýsingatækni í kennslu.
Við í MTR kynntumst Natalie fyrst á ráðstefnu í Rúmeníu 2016 og höfum hitt hana tvívegis síðan á ráðstefnum og hefur síðan langað að fá hana til okkar og njóta sérfræðiþekkingar hennar á upplýsingatækni og ýmsum nýstárlegum kennsluaðferðum.
Þetta var skemmtilegur dagur og flestum þótti námskeiðið áhugavert og töldu sig hafa fengið hugmyndir til að nota í kennslu. Samveran var einnig mikilvæg því það er ekki oft sem kennarahópurinn er á sama stað heilan dag og svo var mjög gaman að geta boðið kollegum frá Fjallabyggð, Húsavík og Akureyri með. Námskeiðið var styrkt af Erasmus+ eins og svo mörg endurmenntunarnámskeið sem kennarar skólans hafa notið síðustu ár.
Fleiri myndir frá námskeiðsdeginum eru hér.