MTR býður í bíó

Nemendum eldri bekkja í grunnskólum Dalvíkur og Fjallabyggðar er boðið í bíó á mánudag og auðviðað líka nemendum menntaskólans. Myndin ber titilinn Disconnect og er áhrifamikil. Tvær sýningar verða í Tjarnarborg. Ferðir verða frá Siglufirði og Dalvík – og til baka.

Menntaskólinn á Tröllaskaga býður í bíó í Tjarnarborg
Mánudaginn 11. nóvember ætlar Menntaskólinn á Tröllaskaga í samstarfi við Sambíó að bjóða nemendum sínum og nemendum í eldri bekkjum grunnskóla Dalvíkur og Fjallabyggðar í bíó á myndina Disconnect .
Disconnect er gríðarlega áhrifamikil mynd sem líður áhorfendum seint úr minni Hér eru sagðar þrjár aðskildar sögur sem tengjast internetinu og enda sem ein heild.
Fyrsta sagan er um lögfræðing sem áttar sig á því að sonur hans er orðinn fórnarlamb skelfilegs eineltis eftir að hafa opinberað sig á spjallrás. Um leið kynnumst við drengnum sem stendur fyrir eineltinu og föður hans sem er fyrrverandi lögreglumaður. Önnur sagan er um ung hjón sem verða fyrir því að bankareikningar þeirra eru tæmdir. Þriðja sagan er síðan um blaðakonu sem gerir alvarleg mistök.

Sýning fyrir 8. 9. og 10. bekk Grunnskóla Dalvíkur og Ólafsfjarðar verður kl. 17:00

Sýning fyrir nemendur MTR verður kl. 20:00

Rúta fer frá Torginu Siglufirði kl. 16:15 og heim aftur eftir myndina.
Rúta fer frá Grunnskólanum á Dalvík kl. 16:15 og heim aftur eftir myndina
Einnig fer „skólarútan“ frá N1 á Dalvík kl. 19:15 og heim aftur eftir myndina og rúta frá Torginu Siglufirði kl. 19:15 og heim aftur eftir myndina.