Menntaskólinn á Tröllaskaga og Háskólinn á Akureyri þróa sjávarútvegsnám

Menntaskólinn á Tröllaskaga og Háskólinn á Akureyri ætla að vinna saman að því að bæta menntun á sviði sjávarútvegs og fiskvinnslu. Viljayfirlýsing þess efnis hefur verið undirrituð. Markmið samstarfsins er að þróa áfram nýtt nám Menntaskólans í fisktækni og uppfylla þannig þarfir atvinnugreinarinnar fyrir vel menntað starfsfólk. Námið á einnig að veita nemendum mikla möguleika á persónulegri starfsþróun og opna þeim ný tækifæri.

Sjávarútvegsfræði hefur verið kennd með góðum árangri í Háskólanum á Akureyri í tvo áratugi. Skortur hefur hins vegar verið á kennslu á framhaldsskólastigi á sviði sjávarútvegs og fiskvinnslu frá lokun Fiskvinnsluskólans og fisktæknibrautar á Dalvík. Í atvinnulífinu vantar fólk með þekkingu og færni til margra sérhæfðra starfa og til að takast á við vaxandi kröfur um gæði og öryggi afurða. Nýju námi MTR í fisktækni er ætlað að bæta úr þessu og skila faglærðu fólki inn í fiskvinnslufyrirtæki og önnur fyrirtæki sem tengjast sjávarútvegi. Námið verður líka grunnur að framhaldsnámi, meðal annars í sjávarútvegsfræðum við HA.Í nýjum lögum um framhaldsskóla er gerð aukin krafa um samstarf háskóla og framhaldsskóla. Formlegt samstarf MTR og HA á sviði náms í fisktækni og sjávarútvegsfræðum er í samræmi við þá áherslu. Verkefnisstjórn þróar nýja námið í MTR áfram í samráði við skólastjórnendur. Þekking og aðstaða sem skólarnir tveir búa yfir mun nýtast betur en ella hefði verið. Nemendur, starfsmenn skólanna og fyrirtæki í atvinnugreininni munu njóta góðs af

 Á myndinni eru Anna María Jónsdóttir verkefnisstjóri fisktæknibrautar MTR, Hreiðar Þór Valtýsson forstöðumaður Sjávarútvegsmiðstöðvarinnar við HA, Stefán B. Sigurðsson rektor HA, Lára Stefánsdóttir skólameistari MTR og Ögmundur Knútsson forseti viðskipta- og raunvísindasviðs HA.