Meiri hreyfingu!

Hreyfidagur mynd GK
Hreyfidagur mynd GK
Mikil og góð þátttaka var í hreyfideginum, síðasta föstudag. Fimmtíu og tveir nemendur mættu í 104 hreyfistundir, þannig að meðaltalið er tvær hreyfistundir á mann. Allar íþróttagreinar sem boðið var upp á voru vel sóttar. Eins og myndirnar sýna ríkti leikgleði og einbeitni í íþróttahúsinu þennan dag.

Nokkrir nemendur höfðu orð á því að þeir hefðu áhuga á fleiri hreyfidögum. Hægt væri að nota hluta úr degi, fyrir hádegi eða eftir hádegi. Starfsbrautarnemendur mættu vel og voru ánægðir með hreyfinguna og aðrir nemendur voru ánægðir með þátttöku þeirra. Strákar höfðu nokkru meiri áhuga á hreyfingunni en stúlkur, 33 strákar voru með en 19 stúlkur. Myndir