Uppblásin lungu!

Nemendur í líffræði skoðuðu líffæri úr svínum í vikunni. Þar á meðal hjarta, lungu, lifur, vélinda, barka og þind. Lungun voru skoðuð rækilega og blásin út. Einnig voru hjörtun skorin og skoðuð hvolf, gáttir, lokur og helstu æðar. Nemendur reyndu að átta sig á leið blóðsins um hjartað.

Nemendur veltu líka fyrir sér lögun, lit og áferð á líffærunum. Þetta var fyrst og fremst hugsað til að brjóta upp kennsluna og leyfa þeim að prófa eitthvað annað en hefðbundna námsaðferð. Almennt fannst nemendum þetta mjög skemmtilegt og kemur vel til greina að endurtaka leikinn. Myndir