Kynning á frumkvöðlaverkefnum

Mynd Ómar Gunnlaugsson
Mynd Ómar Gunnlaugsson
Á Stórsýningunni á laugardag vera m.a. kynnt nokkur áhugaverð verkefni sem unnin hafa verið í frumkvöðlaáfanga skólans í haust. Nokkrir hópar hafa verið að störfum undanfarnar vikur við að skipuleggja eigin hugmyndir sem eiga að auka fjölbreytni í atvinnulífi og afþreyingu á svæðinu. Fjarnemar áttu að einbeita sér að sínu svæði. Hver kynning stendur í um 15 mínútur og verður hægt að bera fram spurningar til fyrirlesara. Hvetjum við gesti sýningarinnar til að líta inn og kynna sér hugmyndir unga fólksins. Kynningarnar verða í stofunni Hæringi.

Tröllaskagi.is – Vefsíða fyrir ferðamenn þar sem hægt er að skoða hvað er í boði í gistingu og afþreyingu og panta.
Múlinn – Skoðunarferðir á bát um fjörðinn með möguleika á sjóstangveiði og norðurljósasiglingum.
Tölvuverkstæði – Tölvuviðgerðir og viðhald auk „server“-þjónustu
Knattspyrnuskóli fyrir ungmenni
Sala minjagripa sem merktir eru Fjallabyggð
Íþrótta- og heilsutengd námskeið fyrir fullorðna í Fjallabyggð
Líkamsræktarapp
Afþreyingarferðir í Dalvíkurbyggð
Söguferðir í Dalabyggð