Frímann Geir á flugi yfir Fjarðarheiði um síðustu helgi.
Ljósmynd: Katla Mjöll Gestsdóttir
Vetraríþróttir eru vinsælar á Tröllaskaga og íbúarnir elska að leika sér í snjónum. Einn þeirra er Frímann Geir Ingólfsson nemandi í MTR en hann kýs vélsleða fram yfir skíðin og sigraði í sportflokki í snjókrossi um síðustu helgi.
Þetta er aðeins annar veturinn sem Frímann keppir á vélsleða en hann hefur stundað mótókross frá sex ára aldri. Þegar hann svo prófaði að keppa á vélsleða í fyrra var ekki aftur snúið. Í fyrra keppti hann í unglingaflokki og hafnaði í öðru sæti og eftir sigurinn um helgina hækkar hann enn um flokk. Það eru því miklar framfarir hjá þessum unga vélsleðakappa sem við í skólanum erum ákaflega stolt af að hafa í okkar röðum