Hnossgæti

„Væna flís af feitum sauð“ ... bærilega smakkast bógurinn af honum Botna. Kennarar skólans hafa síðustu daga gætt sér á tvíreyktu frá þeim Hólmfríði og Gísla í Bjarnastaðahlíð í Lýtingsstaðahreppi hinum forna í Skagafirði.

Væna flís af feitum sauð“ ... bærilega smakkast bógurinn af honum Botna. Kennarar skólans hafa síðustu daga gætt sér á tvíreyktu frá þeim Hólmfríði og Gísla í Bjarnastaðahlíð í Lýtingsstaðahreppi hinum forna í Skagafirði.

Flestir hafa kunnað sér hóf en þegar ilmurinn lokkar verða freistingar stundum hyggjuvitinu sterkari. Talið er að Hjördís, Villa og Brynjar námsráðgjafi hafi farið óvarlega með hífinn þegar fáir sáu til. Takk fyrir ketið ljúffenga, Hólmfríður og Gísli!