Heimsókn í Listhúsið

Heimsókn í listhús mynd BM
Heimsókn í listhús mynd BM

Nemendur í myndlist og nemendur á starfsbraut gerðu sér ferð í Listhús og skoðuðu áhugaverða sýningu bandarísku listakonunnar Alana LaPoint. Hún hefur dvalið í Listhúsinu frá því byrjun febrúar og var sýningin ákveðinn lokapunktur á dvöl hennar hér á landi. Listakonan fræddi nemendur um tilurð sýningarinnar og svaraði spurningum nemenda sem lýstu yfir hrifningu sinni og almennri ánægju með verkin hennar. Myndir