Á Múlakollu. Mynd: Lára Stefánsdóttir.
Hefðbundið skólastarf hefst eftir páskaleyfi þann 7. apríl 2021 samkvæmt gildandi sóttvarnareglum um skólastarf í framhaldsskólum. Nemendur og starfsfólk eru beðin um að gæta þess í hvívetna að halda þær reglur sem gilda. Við erum vonandi á endasprettinum vegna Covid-19 faraldrinum og mikilvægt að við höldum þetta öll út. Reglurnar eru þessar til 15. apríl:
- Hámarksfjöldi starfsfólks og nemenda í rými: 30
- Lágmarksfjarlægð milli einstaklinga: 2 metrar
- Grímunotkun: Þar sem 2 metra bil er ekki mögulegt
- Tilfærsla starfsfólks og nemenda milli hópa: Heimil sé gætt að ýtrustu sóttvörnum og sótthreinsað á milli hópa
- Sameiginleg rými (inngangur, anddyri, snyrting og gangar): Heimilt að víkja frá fjöldatakmörkunum ef andlitsgrímur eru notaðar
- Íþróttakennsla: Heimil með sömu takmörkunum og önnur kennsla.