Haustsýning

Mynd Lára
Mynd Lára
Sýningin verður opnuð klukkan 13:00 á morgun og flutningur tónlistaratriða hefst stundvíslega klukkan 13:15. Til sýnis eru verk nemenda í listum, ljósmyndun, nýsköpun, félagsfræði, forritun og fleiri námsgreinum.

Nokkur verkanna eru þegar orðin yrkisefni. Nemendur í ÍSL2A ortu um þau í kennslustund í gær og ljóðin verða á sýningunni. Málverk og ljósmyndir taka að venju mikið rými á sýningunni. Sumar myndirnar koma langt að því fjarnemar skólans búa víðsvegar um landið. Starfsbrautarnemar sýna mósaik-kertastjaka og keramik-jólasveina. Félagsfræðinemar kynna rannsóknir sínar, meðal annars á birtingarmyndum kynja í kvikmyndum og teiknimyndasögum og nemendur í forritun verða með barnahorn þar sem sýndar verða teiknimyndir – lítil ævintýri fyrir yngstu kynslóðina.

Sýningin verður opin til klukkan 16 á laugardag en verður síðan aðgengileg í skólanum fram að útskrift 21. desember.