Gjöf frá sparisjóðunum í Fjallabyggð

Sparisjóðirnir í Fjallabyggð bæði Siglufirði og Ólafsfirði færðu skólanum gríðarlega falleg málverk að gjöf vegna stofnunar skólans. Annað verkið er eftir Garúnu sem búsett er í Ólafsfirði og rekur þar fallegt gallerý en hitt eftir Bergþór Morthens bæjarlistamann Fjallabyggðar. Verðmæti gjafarinnar er 500.000 sem er gríðarlega veglegt framlag sparisjóðanna sem við erum afar þakklát fyrir.  Verk Garúnar er nú í anddyri skólans en það er verkið vinstra megin á myndinni en verk Bergþórs er í vinnurými sem kallað er Syðsta og blasir við úr anddyri skólans.  Lára Stefánsdóttir skólameistari tók á móti þessari veglegu gjöf frá Helga Jóhannssyni hjá Sparisjóði Ólafsfjarðar. Sparisjóðirnir í Fjallabyggð bæði Siglufirði og Ólafsfirði færðu skólanum gríðarlega falleg málverk að gjöf vegna stofnunar skólans. Annað verkið er eftir Garúnu sem búsett er í Ólafsfirði og rekur þar fallegt gallerý en hitt eftir Bergþór Morthens bæjarlistamann Fjallabyggðar. Verðmæti gjafarinnar er 500.000 sem er gríðarlega veglegt framlag sparisjóðanna sem við erum afar þakklát fyrir.  Verk Garúnar er nú í anddyri skólans en það er verkið vinstra megin á myndinni en verk Bergþórs er í vinnurými sem kallað er Syðsta og blasir við úr anddyri skólans.  Lára Stefánsdóttir skólameistari tók á móti þessari veglegu gjöf frá Helga Jóhannssyni hjá Sparisjóði Ólafsfjarðar.