09.11.2011
Nútíminn verður að fortíð og til að tryggja að menning framhaldsskólanema glatist ekki er hafin á vegum
Þjóðminjasafns Íslands söfnun á upplýsingum um líf og starf framhaldsskólanema. Meðal annars er spurt um vígslu nýnema, um
dansleiki og félagsstarf og um daglegt líf svo sem hvað gert sé í frímínútum og hvernig sætaskipan sé í kennslustofum.
Þjóðminjasafnið óskar eftir liðveislu nemenda Menntaskólans á Tröllaskaga við þetta verkefni.