Fjölmenni við opnun

Um eitt hundrað og fimmtíu gestir voru við opnun sýningar á verkum fimm listnemenda Menntaskólans á laugardag. Sýningin er í Bláa húsinu Gallerý við smábátahöfnina á Siglufirði og njóta verkin sín afar vel í flottu umhverfi. Verkin vöktu mikla athygli meðal sýningargesta og er fagnaðarefni fyrir nemendur og skólann hve aðsóknin var góð. Sýningin verður opin um næstu helgi.

Nemendur fengu þarna mjög góða reynslu og þjálfun í því að undirbúa og halda sýningu utan skólans auk þess sem þau þjálfuðust í því að ræða um eigin verk við sýningargesti. Nemendurnir eru allir í áfanganum MYL3B og hafa verið að skoða myndlist frá sjónarhóli fagurfræðinnar. Sýningin samanstendur af verkum sem fjalla um hið fagra, hið háleita og hið gróteska. Túlkun þeirra er ólík og nálgast hver viðfangsefnið með sínum hætti. Myndir