Fjölbreyttar íþróttir á starfsbraut

Spjótkast mynd GK
Spjótkast mynd GK
Á þessari önn kynnast nemendur á starfsbraut skólans fjölda íþróttagreina sem og ýmsum leiðum til að stunda líkamsrækt. Kennslan fer fram bæði úti og inni; á íþróttavellinum, í íþróttasal, í ræktinni og sundlauginni. Í síðustu viku spreyttu nemendur sig í körfubolta og svo voru rifjaðir upp taktar fornkappa í hinni tígulegu íþróttagrein spjótkasti. Sáust þar flott tilþrif og allir sluppu heilir frá þeim æfingum.

Á þessari önn kynnast nemendur á starfsbraut skólans fjölda íþróttagreina sem og  ýmsum leiðum til að stunda líkamsrækt. Kennslan fer fram bæði úti og inni; á íþróttavellinum, í íþróttasal, í ræktinni og sundlauginni. Í síðustu viku spreyttu nemendur sig  í körfubolta og svo voru rifjaðir upp taktar fornkappa í hinni tígulegu íþróttagrein spjótkasti. Sáust þar flott tilþrif og allir sluppu heilir frá þeim æfingum. Myndir