Fréttatilkynning Fjarmenntaskólinn

Sjö framhaldsskólar á landsbyggðinni hafa ákveðið að bjóða sameiginlega upp á fjarnám með áherslu á starfsnám. Um er að ræða Fjörbrautaskóla Snæfellinga, Fjölbrautaskóla Norðurlands Vestra, Menntaskólann á Tröllaskaga, Framhaldsskólann á Húsavík, Menntaskólann á Egilsstöðum, Verkmenntaskóla Austurlands og Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu.

Sjö framhaldsskólar á landsbyggðinni hafa ákveðið að bjóða sameiginlega upp á fjarnám með áherslu á starfsnám.  Um er að ræða Fjörbrautaskóla Snæfellinga, Fjölbrautaskóla Norðurlands Vestra, Menntaskólann á Tröllaskaga, Framhaldsskólann á Húsavík, Menntaskólann á Egilsstöðum, Verkmenntaskóla Austurlands og Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu.  Í vor verður áhugi kannaður á námi á 15 námsbrautum og í kjölfarið tekin ákvörðun um hvað verður í boði á haustönn.  Námið fer fram með stuttum staðbundum lotum og í fjarnámi.  Miðað er við að hægt sé að taka námið samhliða vinnu.  Markmið skólanna er einkum að auka framboð á framhaldsskólanám á starfssvæði skólanna og á landinu öllu með hagkvæmum hætti. 

Nánari upplýsingar er að finna á vef Fjarmenntskólans fjarmenntaskolinn.is og hjá Eyjólfi Guðmundssyni skólameistara Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu, eyjolfur@fas.is, 4708070, 8602958.