Fisktæknibraut í boði

Kennsla í fisktækni í Menntaskólanum á Tröllaskaga hefst haustið 2012. Áhersla verður lögð á íslenskan sjávarútveg sem eina af undirstöðu atvinnugreinum Íslendinga og mikilvægan þátt í menningu okkar og arfleið. Í náminu verður auk kjarnagreina boðið upp á áfanga í sjávarútvegsfræðum, vinnuvistfræði, námstækni, fiskvinnslu og rekstri fiskvinnslufyrirtækja.

Kennsla í fisktækni í Menntaskólanum á Tröllaskaga hefst haustið 2012.

Áhersla verður lögð á íslenskan sjávarútveg sem eina af undirstöðu atvinnugreinum Íslendinga og mikilvægan þátt í menningu okkar og arfleið. Í náminu verður auk kjarnagreina boðið upp á áfanga í sjávarútvegsfræðum, vinnuvistfræði, námstækni, fiskvinnslu og rekstri fiskvinnslufyrirtækja. Þá er lögð rík áhersla á vinnustaðanám og tengsl við fyrirtæki og stofnanir. Hægt verður að velja áfanga í sjávarlíffræði, umhverfisfræði og matvælafræði. Í boði verður námsleið til stúdentsprófs ásamt styttri námsleið í fiskiðnaði til framhaldsskólaprófs.

Námið leggur góðan grunn fyrir starfsfólk í fiskiðnaði en einnig þá sem vilja undirbúa háskólanám og veitir þjálfun til fjölbreyttra starfa sem tengjast sjávarútvegi.

Nánari upplýsingar um námið veitir Anna María Jónsdóttir sjávarútvegsfræðingur sem er verkefnisstjóri námsins.