Fegurð himinsins

Mynd GK
Mynd GK
Birtingin var venju fremur fögur í Ólafsfirði í morgun. Fjólubláum glampa sló á hálfsnjóa tinda fjallanna sem umlykja bæinn. Veturinn lætur bíða eftir sér og sumir eru alveg til í að bíða eftir honum enn um hríð. Eldra fólk hafði á orði að tíð væri jafnan góð á meðan jarðeldur væri uppi.

Samkvæmt þeirri þjóðtrú frýs ekki meðan gýs. Þeir starfsmenn skólans sem ferðast daglega langan veg til vinnu sinnar fagna góðri færð. Aðrir láta sig dreyma um að skreppa í golf eftir vinnu eða bara að þvo bílinn.