Ljósmynd: Olga
Sextán kennarar og þroskaþjálfi skólans er nú á endurmenntunarnámskeiði í Puerto de la Cruz á norðurströnd Tenerife. Megin viðfangsefni námskeiðsins er streita, að læra að þekkja streituvalda og að tileinka sér aðferðir til að vinna bug á þeim sem svo aftur minnkar hættuna á kulnun í starfi.
Þetta er vikunámskeið sem styrkt er af Erasmus+ og er frá 9-15 alla dagana. Mestmegnis inni i skólastofu en einnig er farið út i góða veðrið til að æfa slökun og núvitund sem eru einmitt gagnleg tæki til að vinna gegn streitu.
Heimsfaraldurinn síðustu tvö ár hefur reynt mikið á og þetta er því gott veganesti inn i framtíðina. Það er ekki síst samveran sem er gagnleg og langþráð þvi kennarar skólans eru samhentur hópur sem ekki hafa haft tækifæri á að vera öll saman síðustu misseri. Það verða því endurnært og afslappað starfsfólk sem mæta til vinnu eftir sumarfrí.