Betri vörur frá Hlíð

Gunnar og Svanfríður mynd GK
Gunnar og Svanfríður mynd GK
Þau hafa ræktað bleikju í meira en tuttugu ár, alltaf á sömu kennitölunni. Þau vinna fiskinn sjálf og auka verðmætið með því að reykja og grafa. Varan fer um allt land, í verslanir, á veitingastaði og hótel. Hjónin Svanfríður Halldórsdóttir og Gunnar L. Jóhannsson reka Fiskeldisstöðina Hlíð og matvælafyrirtækið Betri vörur í Ólafsfirði

Þau hafa ræktað bleikju í meira en tuttugu ár, alltaf á sömu kennitölunni. Þau vinna fiskinn sjálf og auka verðmætið með því að reykja og grafa. Varan fer um allt land, í verslanir, á veitingastaði og hótel. Hjónin Svanfríður Halldórsdóttir og Gunnar L. Jóhannsson reka Fiskeldisstöðina Hlíð og matvælafyrirtækið Betri vörur í Ólafsfirði.

Gunnar og Svanfríður greindu nemenum í Tröllaskagaáfanga frá því lykillinn að velgengni lægi í vöruvöndun og einnig skipti miklu að eiga persónuleg og góð samskipti við viðskiptavinina. Þau hefðu skapað sér sérstöðu með miklum gæðum og persónulegri þjónustu.

Upphaflega frjóvguðu þau bleikjuna sjálf en kaupa nú seiði frá Hólum í Hjaltadal. Lax ala þau ekki lengur en kaupa hann frá Rifósi í Kelduhverfi. Gunnar segir að hreint vatn skipti öllu í fiskeldinu og gott fóður. Auðveldara sé að ala bleikju en lax, hann sé hvumpinn og stressaður. Þótt stöðin í Hlíð sé ekki stór þykir hún merkileg og þeir sem eru að læra fiskeldi á Hólum og einnig í Sjávarútvegsskóla Sameinuðu þjóðanna sækjast eftir að skoða hana.