AFS mynd ÞH
AFS eru alþjóðleg sjálfboðaliða- og fræðslusamtök. Meginviðfangsefni þeirra eru nemandaskipti landa á milli og bjóða samtökin upp á þvermenningarleg námstækifæri þar sem hægt er að öðlast þá þekkingu, færni og skilning sem þarf til að vinna að réttlátari og friðsamari heimi. AFS samtökin hafa verið í fararbroddi á sviði námstækifæra erlendis fyrir ungt fólk um árabil og starfið er stutt og rekið af þjálfuðu starfsfólki og sjálfboðaliðum.
Í dag komu fulltrúar frá samtökunum í skólann og kynntu nemendum þau fjölbreyttu tækifæri sem standa til boða í skiptinámi á vegum AFS, allt frá nokkurra vikna námskeiðum upp í ársdvöl. Á hverju ári fara um 13.000 einstaklingar um heim allan í slíkt nám og þar af eru nokkrir tugir frá Íslandi. Þátttaka í slíku námi auðveldar ungmennum að kynnast heiminum og eiga samskipti án hindrana við fólk frá öðrum löndum og menningarheimum. Lögðu fulltrúarnir áherslu á hversu þroskandi slík þátttaka væri; að búa hjá nýrri fjölskyldu í nýju landi, að upplifa ólíkar hefðir, að þjálfa upp samskiptafærni sem nýttist manni í framtíðinni og læra að meta og dýpka skilning sinn á mismunandi sjónarmiðum, menningarheimum, trúarbrögðum og mikilvægum málefnum sem varða okkur öll. Rúsínan í pylsuendanum væri svo að mynda vinabönd sem endast oft ævilangt.
Var ekki laust við áhugaglampa í augum nemenda sem sjálfir hafa fengið nasasjón af námi erlendis með þátttöku í ýmsum Evrópuverkefnum sem MTR hefur verið aðili að undanfarin ár.