Æft fyrir söngkeppni

Marín, Ólöf og Sólrún mynd GK
Marín, Ólöf og Sólrún mynd GK
Söngkeppni framhaldsskólanna á Norður- og Austurlandi fer fram á Akureyri á morgun. Ólöf Rún, Marín Líf og Sólrún Anna tóku létta æfingu í anddyri skólans fyrir söngkeppnina í vinnutíma í morgun. Þær ætla að flytja blöndu af lögunum Love yourself með Justin Bieber og Photograph með Ed Sheeran.

Að undanförnu hafa stúlkurnar unnið að útsetningu efnisins, þær völdu það sjálfar og hafa aðeins notið minniháttar leiðsagnar Guito tónlistarkennara og Lísebetar íþróttakennara, sem er gömul Idol-stjarna.