57 nýir umsækjendur

Nú hafa 57 sótt um skólavist næsta vetur en auk þess eru nokkrir nemendur úr 10. bekk með skólann sem sitt annað val. Umsóknir fara í ákveðið ferli sem skilgreint er af mennta- og menningarmálaráðuneyti í reglugerð. Gera má ráð fyrir að hluti þeirra sem sækir um nám skili sér síðan ekki í haust þannig að umsóknartalan segir ekki allt um nemendafjölda næsta vetur.

Nú hafa 57 sótt um skólavist næsta vetur en auk þess eru nokkrir nemendur úr 10. bekk með skólann sem sitt annað val. Umsóknir fara í ákveðið ferli sem skilgreint er af mennta- og menningarmálaráðuneyti í reglugerð Nr. 204/2012.

Gera má ráð fyrir að hluti þeirra sem sækir um nám skili sér síðan ekki í haust þannig að umsóknartalan segir ekki allt um nemendafjölda næsta vetur. 

Skólinn hefur ákveðin nemendaígildi sem úthlutað er af Alþingi, eitt nemendaígildi er nám nemanda í fullu námi á einu almanaksári. Fjárveitingar til skólans byggja á nemendaígildunum. Því fer nemendafjöldi ekki eftir nemendaígildunum þar sem allir eru ekki í fullu námi.  

Nemendur sem voru skráðir í skólann á vorönn 2012 hafa skólavist hafi þeir skilað inn valblaði og verður gert ráð fyrir þeim til náms í haust.

Nú stendur yfir umsóknartími fyrir nemendur úr 10. bekk en þeir hafa forgang umfram aðra nemendur þar til umsóknarfresti lýkur 8. júní (föstudag). Við' gerum ráð fyrir að geta tekið alla inn sem velja okkur sem 1. val (nema vinsældir okkar aukist því mun meira á þessum þremur dögum). Eftir að þessum fresti lýkur getum við ráðstafað plássum til þeirra sem eldri eru en þurfum að halda eftir plássi fyrir þá sem eru að koma úr 10. bekk en velja skólann sem 2. val. Þeir hafa forgang og við tökum þá inn ef skólinn sem þeir völdu númer 1 hefur ekki pláss fyrir þá. Nemendur sem setja skólann ekki sem 1. eða 2. val hafa ekki forgang um skólavist.

Þeir sem eru ekki að koma úr 10. bekk geta gert ráð fyrir svörum um skólavist í næstu viku.