Hópíþróttir
Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Viðfangsefni áfangans eru hópíþróttagreinar eins og knattspyrna, körfuknattleikur, handknattleikur og blak ásamt fleiri greinum. Í áfanganum er áherslan m.a. á sögu íþróttagreinanna, grunnreglur íþróttagreinanna og þjálfun íþróttagreinanna fyrir byrjendur upp að 12 ára aldri. Farið er í mikilvæg atriði við þjálfun barna í íþróttagreinunum, s.s. mikilvægi leikja, hvernig á að byggja upp tímaseðil og hvernig hægt er að flétta líkamlegri
þjálfun inn í leiki og æfingar.
Þekkingarviðmið
- sögu íþróttagreinanna, eins og upphafi þeirra og þróun
- grunnreglum íþróttagreinanna
- mikilvægustu atriðunum við þjálfun barna í íþróttagreinunum
- hvaða atriði skipta máli við þjálfun hópaíþróttagreina, eins og taka tillit til allra iðkenda, gefa öllum tækifæri og að æfingar taki mið af þörfum og getu einstaklinga og hópsins í heild
- nýtingu leikja og æfinga fyrir byrjendur og þá sem lengra eru komnir í íþróttagreinunum
- uppsetningu tímaseðla
Leikniviðmið
- setja upp skipulagðan tímaseðil í íþróttagreinunum út frá getu iðkenda og markmiðum tímans
- nýta leiki til að þjálfa grunnatriði íþróttagreinanna og flétta líkamlegri þjálfun inn í leiki og æfingar
- meta hvaða tækni- og leikfræðiatriði í íþróttagreinunum henta hverjum aldurshóp
- útfæra mismunandi krefjandi æfingar til að æfa viðfangsefni íþróttagreinanna
Hæfnisviðmið
- meta og dæma leiki í íþróttagreinunum hjá yngstu aldurshópunum
- fylgjast með æfingu íþróttafélaga í íþróttagreinunum hjá yngsta aldurshópnum og meta æfingavalið og uppsetninguna á æfingunni
- horfa á leiki í íþróttagreinunum og skilið grunnatriði leiksins
- taka þátt í umræðum um íþróttagreinarnar á faglegan og uppbyggilegan hátt
Nánari upplýsingar á námskrá.is