Hugur og menning
Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Forkröfur: Engar formlegar forkröfur eru til þátttöku en áhugi á skapandi vinnu, samvinnu og menningartengdu starfi er æskilegur.
Áfanginn er erlent samstarfsverkefni sem leggur áherslu á andlega vellíðan, tjáningu og gagnrýna hugsun nemenda í stafrænum heimi. Verkefnið tengir saman menningu, listir, útivist og skrif sem leið til að efla andlega vellíðan á skapandi og fjölbreyttan hátt.
Þekkingarviðmið
- mikilvægi andlegrar vellíðunar í námi og daglegu lífi
- hlutverki lista, menningar og skapandi tjáningar
- tjáningu og gagnrýnni hugsun í fjölmenningarlegu samhengi
- lausnum til að bæta andlega heilsu og vellíðan
- mismunandi menningarheimum
Leikniviðmið
- nota ritun sem tjáningarform og verkfæri til að vinna með tilfinningar
- vinna á skapandi hátt með menningarlegar og listrænar aðferðir
- taka þátt í samvinnuverkefnum þvert á landamæri og menningarheima
- nýta náttúruna og útivist sem leið til að bæta andlega vellíðan
- ræða og rökstyðja mikilvægi andlegrar heilsu og gagnrýninnar hugsunar í samtímanum
Hæfnisviðmið
- stuðla að eigin vellíðan og annarra á skapandi hátt
- tengja menningu, listir og sjálfstjáningu við geðheilbrigði
- taka virkan þátt í fjölmenningarlegri samvinnu og sýna skilning á ólíkum menningarlegum sjónarhornum
- sýna ábyrgð í eigin umgengni við menningararf og listræna sköpun
- taka þátt í nýsköpun sem leiðir til aukinnar vellíðanar í samfélaginu
Nánari upplýsingar á námskrá.is