uppeldis- og menntunarfræði - inngangur
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: INNF1IF05
Áfanginn er grunnáfangi í uppeldisfræði og er ætlaður til kynningar á fræðigreininni uppeldis- og menntunarfræði. Fjallað er upphaf uppeldis og ólíkum áherslum út frá sögulegum tímabilum, hlutverk uppeldisstofana, frumkvöðla í uppeldisfræðum. Einnig er fjallað um þroskaferil barnsins, kenningar um vitsmuna-, siðgæðis- og -tilfinningaþroska.
Fjallað er um félags- og sálarþroska, sjálfsmynd barna, þarfir og áhugahvöt, tilfinningatengsl barna við foreldra og ættingja. Þættir og listir í lífi barna eru kynnt fyrir nemendum þ.e. barnamenning, áhrif teikninga, bækur, áhrif fjölmiðla á börn, leikir og leikföng ásamt íþróttum og íþróttauppeldi. Auk þess er fjallað um áföll og kvíðavalda í lífi barna ásamt upplifun barna af hjónaskilnuðum.
Þekkingarviðmið
- upphaf uppeldis ásamt ólíkum áherslum í uppeldi barna út frá mismunandi tímabilum sögunnar og þróun fræðigreinarinnar
- hlutverk uppeldisstofnana og frumkvöðla í uppeldisfræði
- þroskaferil barna, kenningar um vitsmuna-, siðgæðis- og tilfinningaþroska
- félags- og sálarþroska barna, sjálfsmynd barna, þarfir og áhugahvöt, tilfinningatengsl barna við foreldra og ættingja
- áhrifaþætti í lífi barna þ.e. barnamenning, teikningar, bækur, fjölmiðlar, leikir og leikföng, íþróttir og íþróttauppeldi
- áföllum og kvíðavöldum í lífi barna
Leikniviðmið
- geta aflað sér traustra og áreiðanlegra upplýsinga um viðfangsefni uppeldisfræðinnar
- greint upplýsingar og sett í fræðilegt samhengi
- tjá þekkingu sína á munnlegan og skriflegan hátt
- vinna á sjálfstæðan og ábyrgan hátt undir leiðsögn
- nýta margvíslega tækni í þekkingarleit og á ábyrgan og gagnrýnin hátt
Hæfnisviðmið
- taka þátt í umræðum þar sem hann getur tjáð skoðanir sínar, rökstutt þær og hlustað á skoðun annarra
- geta beitt öguðum vinnubrögð og borið ábyrgð á eigin námi
- vinna sjálfstætt og í samvinnu við aðra
- hugsa og starfa á gagnrýnin og skapandi hátt
- miðlað þekkingu sinni og hugmyndum með stafrænum hætti
- til að meta eigið vinnuframlag
- búa yfir hæfni til að takast á við frekara nám
Nánari upplýsingar á námskrá.is